Danski dómsmálaráðherrann hefur verið beðinn um að svara því hvort saksóknarar megi bera höfuðslæðu, eða hijab eins og hún heitir á arabísku.
Danski saksóknarinn Zahra Sediqi skrifaði nýverið á samfélagsmiðilinn Linkedin að hún væri auðmjúk yfir því að vera sú fyrsta til að gegna því starfi í Danmörku sem einnig ber hijab. Fjölskylda Sediqi flúði til Danmerkur frá Afganistan þegar hún var fimm ára en hún hefur búið í landinu í 27 ár.
Í kjölfar færslunnar lagði talsmaður útlendingamála hjá Danmerkurdemókrötunum, Dennis Flydtkjær, áðurnefnda fyrirspurn fyrir Nicolai Wammen dómsmálaráðherra. Hann benti á að síðan árið 2009 hafi það verið hluti af réttarfarslögum að dómarar megi ekki bera trúarleg tákn.
Engar verklagsreglur banna hijab
Í skriflegu svari til danska ríkisútvarpsins, DR, segir samskiptastjóri ákæruvaldsins í Danmörku að engar verklagsreglur séu í gildi sem banni starfsfólki að bera hijab á vinnustaðnum. Það eigi einnig við um störf í réttarsal.
Formaður samtaka saksóknara hjá hinu opinbera, Stig Paulsen, segist í svari til DR að hann sé undrandi yfir þeim styr sem stendur um málið. Samtökin standi óhikað við bakið á Sediqi, sem þau segja að hafi fylgt öllum settum reglum um klæðaburð.
„Umræddur aðili mætir í réttarsal í krafti faglegrar þekkingar sinnar og einskis annars,“ segir í svari Paulsen. „Sé þess óskað að fram fari breiðari pólitísk umræða um klæðaburð í réttarsal, þá verða viðeigandi aðilar að taka hana upp. En umræðan verður þá að vera ígrunduð og ekki einblína á stakan saksóknara, sem hefur að öllu leyti, og samkvæmt öllum reglum, gætt sinnar vinnu.“