Sveitarstjórn Hrunamannahrepps í uppsveitum Árnessýslu mótmælir fyrirhuguðum hækkunum stjórnvalda á virðisaukaskatti á aðgang að baðlónum harðlega. Hún skorar á stjórnvöld að falla frá áformunum.
Málið var tekið fyrir á fundi sveitarstjórnar í dag. Þar var samþykkt einróma að minna á að í Árnessýslu sé fjöldi baðlóna sem hafi borið hróður landsins víða.
„Í Hrunamannahreppi eru þrjú baðlón, Gamla laugin, Hrunalaug og í Kerlingarfjöllum, allt þekktir áfangastaðir sem hafa mikla þýðingu fyrir atvinnulíf og ferðaþjónustu á svæðinu. Aðdráttarafl þeirra styður við störf, eflir aðra þjónustu og skapar verðmæti í nærsamfélaginu. Mikilvægi þeirra nær því langt út fyrir eigin rekstur,“ segir í bókuninni af fundinum í dag.
Að mati sveitarstjórnar er hætta á að fyrirhuguð hækkun á virðisaukaskatti, úr 11% í 24%, leiði til hærri aðgangseyris, dragi úr eftirspurn og þrengi að rekstri fyrirtækjanna.
„Slík þróun getur haft neikvæð áhrif á gistingu, veitingarekstur og aðra þjónustu á svæðinu. Hækkunin myndi því vinna gegn markmiðum um öflugt atvinnulíf á landsbyggðinni og dreifingu ferðamanna og tekna af ferðaþjónustu um landið allt.“
Sveitarstjórnin leggi áherslu á að fyrirtæki búi við stöðugt og fyrirsjáanlegt rekstrarumhverfi og hvetur því stjórnvöld til að eiga raunverulegt samráð við fyrirtækjaeigendur og sveitarfélög. Hún vill að stjórnvöld taki mið af þeirri gagnrýni sem fram hefur komið um áhrif skattahækkana á atvinnu, byggðaþróun og samkeppnishæfi.
„Sveitarstjórn ítrekar að lokum þá kröfu sína um að fallið verði frá fyrirhugaðri hækkun virðisaukaskatts á baðlón.“