Reglur um dvalar­leyfi þrengdar og filipps­eyskar au-pair úr sögunni - Vísir

Reglur um dvalar­leyfi þrengdar og filipps­eyskar au-pair úr sögunni - Vísir

Reglur um dvalar­leyfi þrengdar og filipps­eyskar au-pair úr sögunni - Vísir

Þetta er meðal þess sem kemur fram í drögum að frumvarpi til breytinga á útlendingalögum. Þar eru lagðar fram breytingar sem ætlað er að veita þolendum mansals, misneytingar og alvarlegra vinnumarkaðsbrota betri kost á því að leita réttar síns án þess að glata dvalarrétti sínum eða áunnum rétti til ótímabundins dvalarleyfis.

Drögin voru birt í Samráðsgátt stjórnvalda í dag. Frumvarpið er sagt fela í sér heildarendurskoðun á þeim hluta útlendingalaganna sem snýr að dvalarleyfum og er því meðal annars ætlað að færa umgjörð dvalarleyfa nær því sem tíðkast á öðrum Norðurlöndum.

Samkvæmt drögunum munu handhafar dvalarleyfis á grundvelli starfs sem krefst sérfræðiþekkingar geta sótt um ótímabundið dvalarleyfi eftir fjögur ár í stað sex, að uppfylltum skilyrðum.

Meta hvort muni yfirgefa landið

Ef frumvarpið nær fram að ganga munu yfirvöld gera mat á því hvort umsækjandi um dvalarleyfi vegna atvinnuþátttöku eða menntunar og menningarskipta muni yfirgefa landið að loknum gildistíma leyfisins.

„Leiði heildarmat til þeirrar niðurstöðu að líklegt sé að umsækjandi muni ekki yfirgefa landið skal umsókn hafnað.“

Við matið verði meðal annars heimilt að líta til „upplýsinga um umsækjanda sjálfan, ástæðu umsóknar, aðstæðna í heimaríki hans og fyrirliggjandi upplýsinga og almennrar reynslu stjórnvalda af umsækjendum í sambærilegri stöðu og af sama ríkisfangi eða frá sama upprunaríki og umsækjandi.“

Einnig verði Útlendingastofnun og kærunefnd útlendingamála heimilt að styðjast við lista yfir ríki sem teljast áhætturíki. Áþekk sjónarmið eru sögð liggja til grundvallar við mat á umsóknum um dvalarleyfi á öðrum Norðurlöndum og við samræmda framkvæmd Schengen-ríkjanna við útgáfu vegabréfsáritana.

Vilja ekki setja á fót umfangsmikið eftirlit með au-pair

Í tenglum við vistráðningar, sem hefur í daglegu tali verið rætt um sem au-pair, eru skilyrði slíkra leyfa og eftirlit með þeim sögð hafa verið mun veikara hér á landi en í öðrum norrænum ríkjum. Þá er vísað til þess að Noregur felldi niður heimildir til vistráðningar fólks utan Evrópska efnahagssvæðisins árið 2024. Alls voru 764 dvalarleyfi veitt á grundvelli vistráðningar á Íslandi á árunum 2017 til 2024. Af þeim voru 78 prósent veitt til ríkisborgara Filippseyja.

„Þrennt leiðir til þess að handhafar slíkra leyfa eru taldir sérstaklega viðkvæmir gagnvart hagnýtingu og verður því ekki breytt með þrengri skilyrðum eða auknu eftirliti: leyfið veitir engin atvinnuréttindi eða réttindaávinnslu þótt inntak dvalarinnar sé heimilisstörf og barnagæsla, dvölin fer fram á einkaheimili þar sem eftirlit annarra eftirlitsaðila en lögreglu nær ekki til, og dvalarrétturinn er bundinn við eina tiltekna vistfjölskyldu,“ segir í frumvarpsdrögunum.

Þetta síðastnefnda geti skapað valdaójafnvægi milli fjölskyldunnar og þess vistráðna.

„Ef farin hefði verið sú leið að þrengja skilyrði fyrir veitingu umrædds leyfis í stað þess að fella leyfið brott hefði slíkt kallað á uppbyggingu og fjármögnun sjálfstæðs eftirlits en slíku eftirliti er ekki fyrir að fara í dag. Ekki hefur verið talið raunhæft að koma á fót eða fjármagna slíkt eftirlit með aðbúnaði á einkaheimilum í ljósi umfangs leyfaflokksins og þess kostnaðar sem af því getur hlotist,“ segir í frumvarpsdrögunum.

Sömu sjónarmið hafi legið til grundvallar ákvörðun Noregs um að fella niður heimild til vistráðningar ríkisborgara utan Evrópska efnahagssvæðisins árið 2024. Menningarskipti á grundvelli vistráðningar verða áfram möguleg á öðrum grundvelli samkvæmt drögunum í tengslum við dvalarleyfi vegna menntunar og menningarskipta. Áfram verði hægt að vistráða fólk frá ríkjum Evrópska efnahagssvæðisins.

Lengja tímann sem líður að ótímabundnu dvalarleyfi

Í frumvarpsdrögunum segir að hinn almenni fjögurra ára ávinnslutími ótímabundins dvalarleyfis sem sé við lýði á Íslandi sé með því stysta sem gerist á Norðurlöndum. Því er lagt til að hann verði lengdur í sex ár.

Ríkisborgarar EES- og EFTA-ríkja og aðstandendur þeirra þurfa áfram að dvelja á Íslandi í fimm ár til þess að öðlast rétt til ótímabundinnar dvalar. Misræmið er skýrt með vísan til skuldbindinga Íslands gagnvart EES-samningnum sem setji stjórnvöldum ákveðnar skorður.

Dvalarleyfi veitt til fleiri þolenda

Í frumvarpsdrögunum er lagt til að sé fyrir hendi rökstuddur grunur um að útlendingur sem dvelur á Íslandi á grundvelli atvinnu hafi sætt misneytingu eða alvarlegu vinnumarkaðsbroti sé heimilt að veita honum dvalarleyfi til 12 mánaða svo honum sé kleift að leita sér að öðru starfi eða leita réttar síns.

„Annars vegar skal liggja fyrir staðfesting frá stéttarfélagi eða eftir atvikum samtaka aðila vinnumarkaðarins um að umsækjandi sé mögulegur þolandi misneytingar eða alvarlegra vinnumarkaðsbrota í því ráðningarsambandi sem dvalarleyfi hans byggist á, eða frá Vinnueftirliti ríkisins hins vegar um að vinnuveitandi hafi með verulegum hætti vanrækt skyldur sínar gagnvart honum samkvæmt þeim lögum sem stofnunin hefur eftirlit með. Enn fremur þarf að liggja fyrir staðfesting um að slit hafi orðið á ráðningarsambandinu. Leyfið verður ekki endurnýjað og ráðherra setur reglugerð um nánari skilyrði fyrir veitingu þess,“ segir í frumvarpsdrögunum.

Æskilegt sé að sérstaklega sé kveðið á um þennan rétt í lögunum í ljósi viðkvæmrar stöðu handhafa tímabundinna atvinnuleyfa. „Sá sem sætir misneytingu af hálfu vinnuveitanda stendur því frammi fyrir uppsögn sem getur kostað hann dvalarrétt. Telja má að slíkt ójafnvægi í valdasambandi launþega og atvinnurekanda dragi úr líkum á því að brot séu tilkynnt og geti torveldað lögbundið eftirlit.“

Í núgildandi löggjöf er mælt fyrir um dvalarleyfi fyrir þolendur og hugsanlega þolendur mansals en samkvæmt henni getur slíkt dvalarleyfi ekki orðið grundvöllur ótímabundins dvalarleyfis og dvöl á slíkum leyfum orsakað rof á hinni samfelldu dvöl sem krafa er gerð um.

„Útlendingur sem dvelst hér á landi á grundvelli tímabundins dvalarleyfis og verður þolandi mansals getur því glatað áunnum rétti sínum vegna háttsemi þriðja aðila sem hann á ekki sök á,“ segir í frumvarpsdrögunum. Því sé lagt til að sérstök dvalarleyfi veitt til þolenda og mögulegra þolenda mansals telji upp í ávinnslutíma ótímabundins dvalarleyfis samkvæmt frekari skilyrðum.

Þrengja skilyrði fyrir fjölskyldusameiningu

Þegar kemur að fjölskyldusameiningu er í frumvarpsdrögunum lagt til að lágmarkstími sambúðar verði lengdur úr einu ári í tvö. Einnig er mælt fyrir því að hvor aðili þurfi að hafa náð 24 ára aldri þegar dvalarleyfi er veitt.

„Markmið beggja ákvæða er hið sama: að draga úr hættu á að stofnað sé til hjúskapar eða sambúðar í öðrum tilgangi en þeim að mynda fjölskyldu, þar á meðal í því skyni einu að afla dvalarleyfis, og draga úr hættu á að einstaklingar, einkum ungt fólk og þá einna helst ungar konur, séu þvinguð til hjúskapar fyrir tilstilli fjölskyldu eða annarra.“

Jafnframt segir að víkja megi frá aldursskilyrðinu ef aðilar hafa gengið í hjúskap, stofnað til sambúðar eða getið barn saman áður en sá maki sem búsettur er hér á landi fluttist til landsins. Einnig sé hægt að fara fram á undantekningu ef aðilar gengu í hjúskap á meðan báðir höfðu dvalarleyfi á Íslandi eða vegna „aðkallandi umönnunarsjónarmiða gagnvart þeim maka sem óskað er sameiningar við.“

Einnig er lagt til að foreldrar dvalarleyfishafa sem eru eldri en 67 ára verði felldir úr skilgreiningu laganna á „nánasta aðstandanda“. Þess í stað er bætt við ákvæði sem kveður á um að heimilt sé að veita útlendingi sem er 67 ára eða eldri dvalarleyfi að uppfylltum skilyrðum eigi hann uppkomið barn á Íslandi „enda teljist knýjandi ástæður fyrir veitingu dvalarleyfis, svo sem vegna aðkallandi umönnunarsjónarmiða.“ Aðstandandi sé í skilningi ákvæðisins íslenskur eða annar norrænn ríkisborgari sem sé með fasta búsetu á Íslandi eða útlendingur sem dvelst hér á landi á grundvelli dvalarleyfis.

Vill afnema undanþágu þeirra sem hljóta alþjóðlega vernd

Í dag er það eitt skilyrða ótímabundins dvalarleyfis að framfærsla útlendings hafi verið trygg á dvalartíma hans og hann geti framfleytt sér hér á Íslandi með löglegum hætti.

Það skilyrði hefur ekki átt við um fólk sem hefur haft dvalarleyfi á grundvelli alþjóðlegrar verndar eða mannúðarsjónarmiða.

„Sú undanþága er séríslensk og á sér ekki samsvörun í framkvæmd annarra norrænna ríkja,“ segir í frumvarpsdrögunum og því er lagt til að undanþáguákvæðið verði fellt brott. Þetta myndi fela í sér að handhafar dvalarleyfa á grundvelli alþjóðlegrar verndar og mannúðarsjónarmiða þurfa framvegis að sýna fram á trygga framfærslu til að öðlast ótímabundið dvalarleyfi, líkt og aðrir umsækjendur. Líkt og með hinn hópinn verði heimild til að víkja frá framfærsluskilyrðinu hafi framfærsla verið „ótrygg um skamma hríð og ríkar sanngirnisástæður mæli með því.“

Fréttin er í vinnslu.

#dvalarleyfi #filippseyskar #pair #reglur #þrengdar


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262942684d/reglur-um-dvalarleyfi-threngdar-og-filippseyskar-au-pair-ur-sogunni

📰 Aðrar fréttir

Ódýrt vímuefni ryður sér til rúms – „Ein lítil mistök geta endað í dái eða dauða“
📅 01.10.2026 👁️ 1
Ódýrt vímuefni ryður sér til rúms – „Ein lítil mistök geta endað í dái eða dauða“
Sérfræðingar í Bretlandi hafa áhyggjur af ört vaxandi notkun smjörsýru, eða GHB, meðal ungs fólks. Efnið, sem áður var einkum tengt ákveðnum hópum í n...
Skora á stjórnvöld að falla frá áformum um hækkun virðisaukaskatts á baðlón
📅 01.10.2026 👁️ 0
Skora á stjórnvöld að falla frá áformum um hækkun virðisaukaskatts á baðlón
Sveitarstjórn Hrunamannahrepps í uppsveitum Árnessýslu mótmælir fyrirhuguðum hækkunum stjórnvalda á virðisaukaskatti á aðgang að baðlónum harðlega. Hú...
Leggur til að þing­menn verði 85 í stað 63 - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 1
Leggur til að þing­menn verði 85 í stað 63 - Vísir
Starfshópur á vegum dómsmálaráðuneytisins lagði nýlega til breytingar á kjördæmaskipan landsins en að fjöldi þingmanna yrði sá sami. Samkvæmt tillögum...
Réttarhöld framundan yfir manni sem ákærður er fyrir að nauðga konu og hrinda henni fram af stigapalli
📅 01.10.2026 👁️ 1
Réttarhöld framundan yfir manni sem ákærður er fyrir að nauðga konu og hrinda henni fram af stigapalli
Maður er ákærður fyrir nauðgun, frelsissviptingu og sérstaklega hættulega líkamsárás gagnvart konu. Atvik málsins urðu frá laugardegi til sunnudags ei...
What's gone wrong at Nike? How the world's sportswear giant lost its mojo
📅 01.10.2026 👁️ 1
What's gone wrong at Nike? How the world's sportswear giant lost its mojo
Several self-inflicted mistakes have cost the biggest sportswear brand on the planet in recent years.
Skref í rétta átt en óvíst hvort kjarasamningar haldi
📅 01.10.2026 👁️ 1
Skref í rétta átt en óvíst hvort kjarasamningar haldi
Formenn Samtaka atvinnulífsins og ASÍ eru sammála um að skilaboð forsætisráðherra séu skref í rétta átt og hjálpi til við samningaborðið. Forsætisráðh...
Boðar breytingu á veitingu dvalarleyfa
📅 01.10.2026 👁️ 1
Boðar breytingu á veitingu dvalarleyfa
Til stendur að hætta útgáfu dvalarleyfa til fólks utan EES sem kemur til Íslands í vistráðningu, það er sem au-pair. Markmiðið er að koma í veg fyrir ...
Celebrity Traitors: Chaos, coffins and ‘Claudiapatra’ steal the show
📅 01.10.2026 👁️ 1
Celebrity Traitors: Chaos, coffins and ‘Claudiapatra’ steal the show
There is paranoia, confusion and a battle to survive among the celebrities as they fight for survival.
„Strákar eigi bara ekki að gráta og tala um tilfinningar sínar“
📅 01.10.2026 👁️ 1
„Strákar eigi bara ekki að gráta og tala um tilfinningar sínar“
Andleg heilsa er eitt af stærstu umræðuefnum unglingsáranna og mikilvægt að tala um erfiðu hlutina. Þetta segja ungmenni sem tóku þátt í setningu Forv...
Svara loks sögusögnum um umboðsmanninn Magnús: „Við höfum bara alltaf haft gaman af þessari vitleysu“
📅 01.10.2026 👁️ 1
Svara loks sögusögnum um umboðsmanninn Magnús: „Við höfum bara alltaf haft gaman af þessari vitleysu“
Hljómsveitin Á móti sól fagnar 30 ára afmæli um þessar mundir og ætlar að halda upp á tímamótin með stórtónleikum í Háskólabíói í október, en í nýjum ...
Hvað veistu um... Mean Girls? - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 1
Hvað veistu um... Mean Girls? - Vísir
Myndin fjallar um stúlku, sem leikin er af Lindsay Lohan, sem byrjar í bandarískum menntaskóla eftir að hafa alist upp á erlendri grundu. Í skólanum k...
Hörður hættir vegna ágreinings
📅 01.10.2026 👁️ 1
Hörður hættir vegna ágreinings
Ástæða þess að Hörður Arnarson hefur ákveðið að láta af störfum sem forstjóri Landsvirkjunar er ágreiningur um stjórnarhætti. RÚV greinir frá þessu. H...
Margt eftir og stöðugt verið að uppfæra til að tryggja búsetu
📅 01.10.2026 👁️ 1
Margt eftir og stöðugt verið að uppfæra til að tryggja búsetu
Mikil vinna var lögð í fyrstu niðurstöður endurskoðaðs áhættumats í Grindavík sem birt var í síðustu viku. Skarphéðinn Berg Steinarsson verkefnisstjór...
Skipti engu hvort um­mælin hafi verið sett fram í kald­hæðni - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 1
Skipti engu hvort um­mælin hafi verið sett fram í kald­hæðni - Vísir
Nú hefur hefur dómur Landsréttar í málinu verið birtur en greint var frá því á Vísi í dag að Landsréttur hefði dæmt ummæli fimmtugrar konu í garð Ingó...
Ágreiningur um stjórnarhætti ástæða þess að Hörður hættir
📅 01.10.2026 👁️ 1
Ágreiningur um stjórnarhætti ástæða þess að Hörður hættir
Ástæða þess að Hörður Arnarson hefur ákveðið að láta af störfum sem forstjóri Landsvirkjunar er ágreiningur um stjórnarhætti.Hörður greindi frá ákvörð...
Írani grunaður um að skipu­leggja hryðju­verk við Fairford - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 1
Írani grunaður um að skipu­leggja hryðju­verk við Fairford - Vísir
Þetta hefur breska ríkisútvarpið eftir hryðjuverkadeild lögreglunnar á Bretlandi en þar segir að 27 ára karlmaður sem sé bæði með breskt og íranskt rí...
Írani grunaður um að skipu­leggja hryðju­verk - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 1
Írani grunaður um að skipu­leggja hryðju­verk - Vísir
Þetta hefur breska ríkisútvarpið eftir hryðjuverkadeild lögreglunnar á Bretlandi en þar segir að 27 ára karlmaður sem sé bæði með breskt og íranskt rí...
Össur segir Hannes stunda skipulagt einelti að hætti MAGA: „Þetta er hreint rugl“
📅 01.10.2026 👁️ 1
Össur segir Hannes stunda skipulagt einelti að hætti MAGA: „Þetta er hreint rugl“
Össur Skarphéðinsson, fyrrum ráðherra, segir Hannes Hólmstein Gissurarson, prófessor emeritus, vera forsprakka að einelti gagnvart Þorgerði Katrínu Gu...
Utanríkisráðherra Bandaríkjanna í heimsókn til Íslands
📅 01.10.2026 👁️ 1
Utanríkisráðherra Bandaríkjanna í heimsókn til Íslands
Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hefur þegið boð Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra um heimsókn til Íslands og kemur til ...
Ófremdarástand vegna mótmæla ungmenna í Frakklandi
📅 01.10.2026 👁️ 1
Ófremdarástand vegna mótmæla ungmenna í Frakklandi
Framhaldsskólanemar í Frakklandi hafa komið saman víða um landið í dag til að mótmæla yfirfullum kennslustofum, skorti á kennurum, slæmu ástandi skóla...
Burnham warned Rosebank oil field could breach West Bank sanctions
📅 01.10.2026 👁️ 1
Burnham warned Rosebank oil field could breach West Bank sanctions
Campaigners and Green Party leader Zack Polanski raise concerns about Rosebank's ties to an Israeli firm.
Samtalið mikilvægt á umbrotatímum
📅 01.10.2026 👁️ 1
Samtalið mikilvægt á umbrotatímum
Það eru nú einhverjir mestu umbrotatímar í seinni tíð og því tímabært að hefja samtal um hvernig samfélagi við viljum búa í. Þetta segir forseti Íslan...
Putin warns West that Russia is ready to use every weapon to protect Kaliningrad
📅 01.10.2026 👁️ 1
Putin warns West that Russia is ready to use every weapon to protect Kaliningrad
Vladimir Putin insists Moscow is "not threatening anyone" and merely responding to statements by Western leaders.
Marco Rubio á leið til Ís­lands - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 1
Marco Rubio á leið til Ís­lands - Vísir
Frá þessu er greint í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu en þar er haft eftir Þorgerði að það sé mikið ánægjuefni að Rubio hafi þegið heimboðið „sem...
Pálína sakfelld fyrir meiðyrði gegn Ingó Veðurguð
📅 01.10.2026 👁️ 1
Pálína sakfelld fyrir meiðyrði gegn Ingó Veðurguð
Landsréttur hefur dæmt ummæli Pálínu Helgu Þórarinsdóttur, sem birtust sem athugasemd á Facebook við deilingu á frétt af Vísir.is, 22. mars 2022, dauð...
„Dapur­legt pólitískt út­spil hjá odd­vita Sam­fylkingar“ - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 1
„Dapur­legt pólitískt út­spil hjá odd­vita Sam­fylkingar“ - Vísir
Jónas Már Torfason oddviti Samfylkingarinnar greindi frá því í færslu í morgun að útboð Kópavogsbæjar vegna byggingar stúku við Kórinn hefði verið dæm...
Starfsfólk dýraathvarfs í uppnámi – Maður krafðist þess að fá að hafa samfarir við dýrin
📅 01.10.2026 👁️ 1
Starfsfólk dýraathvarfs í uppnámi – Maður krafðist þess að fá að hafa samfarir við dýrin
Truflaður maður mætti í dýraathvarf í Sviss og krafðist þess að fá geit til þess að borða. Þegar hann fékk neitun vildi hann fá næði til þess að eðlas...
Skipa hóp sem fær umboð til að semja um byggingu Tækniskóla í Reykjavík
📅 01.10.2026 👁️ 1
Skipa hóp sem fær umboð til að semja um byggingu Tækniskóla í Reykjavík
Borgarráð hefur samþykkt að skipa viðræðuhóp sem fær umboð til að semja við Tækniskólann um uppbyggingu nýs skóla í Reykjavík.Í fundargerð borgarráðs ...
Ekki búið að finna nýjan lög­reglu­stjóra hátt í hálfu ári síðar - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 1
Ekki búið að finna nýjan lög­reglu­stjóra hátt í hálfu ári síðar - Vísir
Lítil hreyfing var á ráðningarferlinu í sumar en nú er búið að skipa hæfnisnefnd sem mun meta hæfi þeirra sex einstaklinga sem sóttu um stöðuna í júní...
Konu gert að greiða Ingó miskabætur vegna ærumeiðandi ummæla
📅 01.10.2026 👁️ 1
Konu gert að greiða Ingó miskabætur vegna ærumeiðandi ummæla
Landsréttur hefur snúið við dómi héraðsdóms og gert konu að greiða Ingólfi Þórarinssyni, betur þekktum sem Ingó Veðurguð, miskabætur vegna ummæla sem ...
UK in talks with EU partners to release strategic fuel reserves if needed, BBC understands
📅 01.10.2026 👁️ 1
UK in talks with EU partners to release strategic fuel reserves if needed, BBC understands
President Donald Trump has threatened to ban diesel exports in a bid to ease prices in the US.
UK in talks with EU partners over fuel reserves after Trump diesel threat
📅 01.10.2026 👁️ 1
UK in talks with EU partners over fuel reserves after Trump diesel threat
President Donald Trump has threatened to ban diesel exports in a bid to ease prices in the US.
Ungt fólk kalli eftir samtali og stuðningi fullorðinna
📅 01.10.2026 👁️ 1
Ungt fólk kalli eftir samtali og stuðningi fullorðinna
Samtal og samkennd er yfirskrift forvarnardagsins sem er í dag. Í ár er sjónum beint sérstaklega að nemendum í 9. bekk grunnskóla og öllum nemendum í ...
Utanríkisráðherra Bandaríkjanna væntanlegur til Íslands
📅 01.10.2026 👁️ 1
Utanríkisráðherra Bandaríkjanna væntanlegur til Íslands
Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, er væntanlegur til Íslands í næstu viku. Þetta kemur fram í tilkynningu frá utanríkisráðuneyti Íslands. ...
Al­var­lega slasaður eftir fall af svölum - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 1
Al­var­lega slasaður eftir fall af svölum - Vísir
Rúv greindi fyrst frá en Ari Magnús Benediktsson, framkvæmdastjóri Nestaks, segir við Vísi að starfmaðurinn hafi fallið við vinnu á þriðjudagsmorgni o...
28 sagt upp hjá Klettabæ
📅 01.10.2026 👁️ 1
28 sagt upp hjá Klettabæ
28 starfsmönnum Klettabæjar var sagt upp störfum í vikunni. Jóhanna M. Fleckenstein, framkvæmdastjóri og annar af tveimur eigendum Klettabæjar, segir ...
Örn Bárður Jónsson skrifar: Á hvaða leið er heimurinn?
📅 01.10.2026 👁️ 1
Örn Bárður Jónsson skrifar: Á hvaða leið er heimurinn?
Merkilegt hefur verið að upplifa viðbrögð við grein sem ég ritaði nýlega og birti í DV og tel mjög upplýsandi um áhrif íslam í heiminum. Greinin ber y...
Aftaka klúðrast en hvað gerist svo? – Örlög nokkurra dauðadæmdra fanga sem lifðu af aftöku sína
📅 01.10.2026 👁️ 1
Aftaka klúðrast en hvað gerist svo? – Örlög nokkurra dauðadæmdra fanga sem lifðu af aftöku sína
Margir eru í losti eftir að hafa lesið um misheppnaða aftöku morðingjans Christu Pike í morgun. Eftir tvo skammta af banvænum lyfjum sló hjartað enn þ...
Hótaði að senda menn á eftir stjúpsyni sínum
📅 01.10.2026 👁️ 1
Hótaði að senda menn á eftir stjúpsyni sínum
Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjaness um að maður sem ákærður er fyrir brot í nánu sambandi víki út dómsal á meðan brotaþoli ber vi...
Stephanie Hegarty: What happened in the failed execution of Christa Pike?
📅 01.10.2026 👁️ 1
Stephanie Hegarty: What happened in the failed execution of Christa Pike?
The BBC's Stephanie Hegarty looks at why two attempts to execute the US convicted murderer by lethal injection failed.
Dual UK-Iranian national arrested over RAF Fairford incident
📅 01.10.2026 👁️ 1
Dual UK-Iranian national arrested over RAF Fairford incident
The 27-year-old man was arrested in Westminster, London, counter-terror police say.
Á­rekstur við Hamra­borg - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 1
Á­rekstur við Hamra­borg - Vísir
Þetta staðfestir Friðrik Theódórsson, varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu. Einn sjúkrabíll var sendur á vettvang og tækjabíll en var bei...
Engin að­stoð við próf­töku og litaðar nú­meraplötur - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 1
Engin að­stoð við próf­töku og litaðar nú­meraplötur - Vísir
Reglugerðarbreytingin er sögð liður í heildarendurskoðun á lagaumhverfi fyrir leigubifreiðaþjónustu samkvæmt tilkynningu á vef Stjórnarráðsins. Markmi...
Slasaðist alvarlega í vinnuslysi í Neskaupstað
📅 01.10.2026 👁️ 1
Slasaðist alvarlega í vinnuslysi í Neskaupstað
Starfsmaður verktakafyrirtækisins Nestaks slasaðist alvarlega í vinnuslysi á þriðjudag. Starfsmaðurinn, sem er karl á fertugsaldri, var fluttur á sjúk...
Skriðuviðvörun til morguns
📅 01.10.2026 👁️ 1
Skriðuviðvörun til morguns
„Við fengum nokkrar tilkynningar um aurskriður á Austfjörðum en ekkert alvarlegt sem olli tjóni eða lokaði vegum. En það er mjög mikið vatn á ferðinni...
Fires break out at French schools as students protest nationwide
📅 01.10.2026 👁️ 1
Fires break out at French schools as students protest nationwide
The French government holds a crisis meeting as demonstrations grow and become violent in places.
Norð­menn gerðu símaat í Tré­virki: „Ég er ingen kúnna um þetta“ - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 1
Norð­menn gerðu símaat í Tré­virki: „Ég er ingen kúnna um þetta“ - Vísir
Útvarpsmenn í þættinum Sentralbordet på NRK á norksa ríkisútvarpinu hringja reglulega símaöt innanlands og til útlanda og hringdu nýverið símaat í ísl...
Fjölmiðlar uppskera vantraustið sem þeir sá sjálfir
📅 01.10.2026 👁️ 0
Fjölmiðlar uppskera vantraustið sem þeir sá sjálfir
Rétt eins og á Íslandi eru blaðamenn ekki hlutlausir í Noregi. Sama gerist á Íslandi og það þarf ekki að leita langt til að finna slíka blaðamenn og f...
Upp­ör­vandi fréttir fyrir Demó­krata - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 0
Upp­ör­vandi fréttir fyrir Demó­krata - Vísir
Kosið verður þann 3. nóvember en nú þegar hafa að minnsta kosti 700 þúsund kosið í allavega þrjátíu ríkjum. Gögn segja svipaða sögu og kannanir hafa g...
Lagarde: Evrópa verður að þróa eigin gervigreind
📅 01.10.2026 👁️ 0
Lagarde: Evrópa verður að þróa eigin gervigreind
Lagarde: Evrópa verður að þróa eigin gervigreind Evr­ópski seðla­banka­stjór­inn Christ­ine Lag­ar­de seg­ir að evr­ópsk­ar fjár­mála­stofn­an­ir geti...