Hildur Björnsdóttir borgarstjóri skrifaði í tölvupósti til starfsfólks Ráðhússins síðdegis að frekari breytingar væru í farvatninu eftir þær sem samþykktar voru af borgarráði í dag.
„Á næstu vikum og mánuðum verða kynntar frekari tillögur af þessu tagi sem ná til annarra þátta í rekstri borgarinnar en hagræðingarhópur borgarstjórnar vinnur nú að þeim,“ skrifar hún.
Einnig stendur til að gera áherslubreytingar sem snúa að viðveru, ráðningum og ferðalögum á næstunni.
Í bréfinu sagði Hildur að breytingarnar sem samþykktar voru á borgarráðsfundi í dag væru erfiðar en jafnframt nauðsynlegar. Fjölda starfsfólks Ráðhúss Reykjavíkur var sagt upp eða fært til í starfi. Tvær skrifstofur voru lagðar niður og öllum upplýsingafulltrúum sagt upp.
„Við gerum okkur fulla grein fyrir því að ákvarðanir af þessu tagi snerta fólk með beinum hætti og þær eru hvorki einfaldar né teknar af léttúð,“ skrifar borgarstjóri. „Breytingar eru oft erfiðar á meðan þeim stendur en ég trúi því að þessar umbætur verði til góðs þegar fram líða stundir og leggi grunn að sterkari og betri framtíð fyrir borgina.“