Gjaldfrjáls Strætó fyrir öll reykvísk börn á grunnskólaaldri heyrir sögunni til, aðeins tæpum tveimur mánuðum eftir að breytingin tók gildi. Áfram verður gjaldfrjálst í Strætó fyrir börn 11 ára og yngri, líkt og lengi hefur verið.
Breytingin var samþykkt tæpum þremur vikum fyrir síðustu borgarstjórnarkosningar. Hún varði aðeins í um 50 daga.
Á fundi borgarstjórnar 3. febrúar var samþykkt tillaga um að gera Strætó gjaldfrjálsan fyrir börn í höfuðborginni. Breytingin tók formlega gildi 1. maí en þar sem það var frídagur og á föstudegi má segja að hún hafi raunverulega tekið gildi mánudaginn 4. maí.
Hildur Björnsdóttir borgarstjóri lagði fram tillögu á borgarráðsfundi í dag þess efnis að afturkalla breytinguna sem var samþykkt. Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar og Miðflokksins sátu hjá við afgreiðslu málsins.
Breytingin var með síðustu verkum síðasta meirihluta Samfylkingarinnar, Pírata, Flokks fólksins, Sósíalistaflokksins og Vinstri grænna. Heiða Björg Hilmisdóttir, sem þá var borgarstjóri, lagði fram tillögur um breytinguna.
Breytingin hafi ekki verið fjármögnuð
Borgarráðsfulltrúar meirihlutans lögðu fram bókun á fundinum þar sem þeir gagnrýndu verklag fyrri meirihluta í málinu.
„Því miður samþykkti síðasti meirihluti borgarstjórnar ýmis verkefni sem fólu í sér verulegar og viðvarandi fjárhagslegar skuldbindingar án þess að trygg fjármögnun lægi fyrir. Slík vinnubrögð skapa væntingar hjá börnum og fjölskyldum sem ekki er hægt að efna og grafa undan trausti á stjórnsýslu borgarinnar,“ segir í henni.
Nýr meirihluti taki við erfiðu búi í fjármálum. Ábyrg fjármálastjórn byggi á því að ný verkefni séu kostnaðarmetin og fjármögnuð áður en þau eru samþykkt en ekki eftir á.
Í apríl var lagt upp með að reykvísk börn gætu fengið tímabilskort til að nota í Strætó. Það átti að vera bráðabirgðalausn og fyrirhugað var að síðar yrði útfærð varanleg lausn. Heildarkostnaður var metinn 47 milljónir króna, fyrir tímabilið maí og júní, sem yrði fjármagnaður með viðauka.
Ekki lá fyrir hver kostnaður yrði við breytinguna til frambúðar.
„Við nánari yfirferð hefur komið í ljós að bæði skammtímalausnin og fyrirhuguð varanleg innleiðing gjaldfrjálsra strætóferða fyrir grunnskólabörn fela í sér verulegan og viðvarandi kostnað sem var aldrei gert ráð fyrir í fjárhagsáætlun borgarinnar. Því er nauðsynlegt að afturkalla fyrri samþykktir enda vantaði fjármagnið,“ segir í bókun borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Framsóknar og Viðreisnar.
„Ekki góð niðurstaða að hætta einfaldlega við“
Þrátt fyrir að hafa setið hjá við afgreiðslu tillögunnar í dag lögðu borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar fram bókun á fundinum. Þeir lýsa vonbrigðum með afturköllun gjaldfrjálss Strætó fyrir öll reykvísk börn á grunnskólaaldri.
„Þetta var einföld og skynsamleg aðgerð sem hefði gert líf barnafjölskyldna auðveldara, dregið úr skutli og umferð og aukið aðgengi barna að skóla- og frístundastarfi, óháð efnahag. Þá er mikilvægt að börn fái tækifæri til að kynnast almenningssamgöngum snemma og upplifa þær sem sjálfsagðan faramáta í daglegu lífi. Það er eðlilegt að útfærsla taki tíma og krefjist vinnu, en það er ekki góð niðurstaða að hætta einfaldlega við,“ segir í bókuninni.
Sanna Magdalena Mörtudóttir, áheyrnarfulltrúi Vinstrisins, lagði einnig fram bókun. Hún segir miður að sjá „hægri meirihlutann hverfa frá stefnunni“.
„Mikilvægt er að fjarlægja efnahagslegar hindranir úr lífi barna og tryggja að þau geti ferðast um án kostnaðar. Almenningssamgöngur eiga að vera aðgengilegar öllum börnum, óháð efnahag heimila. Ákvörðun fyrri meirihluta um að afnema gjaldtöku fyrir börn á grunnskólaaldri var liður í því að bæta aðgengi barna og ungmenna að almenningssamgöngum, styðja við sjálfstæði þeirra í daglegum ferðum og draga úr skutli foreldra vegna skóla-, íþrótta- og frístundastarfs. Þessi stefnubreyting hægri flokkanna vekur jafnframt upp spurningar um framtíð þeirra lausna sem skóla- og frístundasvið hefur byggt á í tengslum við gjaldfrjálsar strætóferðir barna,“ segir í bókun Vinstrisins.