Hótel Skáld Akureyri verður opnað um helgina og um leið opnar nýr veitingastaður, Abba-labba-lá. Þar verður þemað fyrstu tvær helgarnar svokallað Bragðmót frændanna þar sem tveir kokkar og frændur leiða saman krafta sína yfir matseðli sem á að bragðast eins og ljóð.
Þetta kemur fram í samtali við Magneu Hjálmarsdóttur, eiganda og framkvæmdastjóra Hótel Skáld.
Hótelið Skáld Akureyri stendur við Hafnarstræti 80–82 og er hluti af Curio Collection by Hilton.
„Kennileiti sem markar nýjan kafla í gistiþjónustu landshlutans,“ segir Magnea. „Skáld hótel býður upp á hlýlega og nútímalega gistingu fyrir ferðamenn sem sækjast eftir þægindum og eftirminnilegri upplifun. Hótelið er staðsett í hjarta Akureyrar, í göngufæri við öflugt menningarlíf og fjölbreytta veitingastaði.“
Aðeins í boði fyrstu tvær helgar opnunar
Opnunarhelgarnar tvær koma kokkarnir Hákon Örvarsson og Sindri Freyr Ingvarsson — frændur og tvær sterkar raddir í íslenskri matargerð — koma til með að taka höndum saman. Viðburðurinn stendur helgarnar 26.–27. júní og 3.–4. júlí.
„Á boðstólum verða þrír smakkréttir, val um aðalrétt og eftirréttur innblásinn af sumri Norðurlands. Áherslan er á árstíðabundin hráefni, skapandi matargerð og óvæntar bragðsamsetningar,“ segir Magnea.
Óskar Árni með ljóðasýningu
Ljóðskáldið Óskar Árni Óskarsson er eitt af þrettán skáldum sem valin hafa verið í ljóðafjölskyldu hótelsins og um helgina verður opnuð sýning á hótelinu á myndljóðum hans með yfirskriftinni „Með þremur fingrum“.
Ljóðin á sýningunni eru ort á fjórar ólíkar ritvélar: Adler TIppa I, Smith Corona Classi 12, Message Concept 11 og SIlver Reed EZ 21.
Óskar Árni er fæddur í Reykjavík 1950. Hann er að góðu kunnur fyrir sínar fjölmörgu ljóðabækur, smáprósa og þýðingar.

