Sex háhyrningar syntu við Norðurströnd á Seltjarnarnesi í nótt. Gísli Baldur Friðbjarnarson sá til þeirra og festi augnablikið á filmu.
„Rétt fyrir tvö í nótt tók móðir mín eftir einhverju í sjónum, en ég var ekki viss í fyrstu hvað það var. Við sáum svo að um var að ræða háhyrninga. Fyrst sáum við tvo en svo voru þeir að minnsta kosti sex talsins,“ segir Gísli í samtali við mbl.is.
„Ég greip símann og myndaði þá. Svo fylgdumst við með þeim synda áfram í átt að Reykjavík. Þetta var svo sannarlega ógleymanlegt augnablik. Við Seltirningar erum heppnir að búa í svo mikilli nálægð við sjóinn.“