Reykjavíkurborg hyggst ráða „lítið teymi“ sem mun annast samskipti við fjölmiðla. Það segir Hildur Björnsdóttir, borgarstjóri í Reykjavík, í samtali við mbl.is.
Líkt og greint var frá fyrr í dag var öllum tíu upplýsingafulltrúum Reykjavíkurborgar sagt upp í dag. Tillaga þess efnis var samþykkt í borgarráði.
Í greinargerð með tillögunni segir:
„Verkefnum verði útvistað og í kjölfarið verði byggt upp sérhæfðara fagteymi en áður með sérstaka hæfni á sviði stafrænnar miðlunar, stafrænnar markaðssetningar, samfélagsmiðlastjórnunar og gagnadrifinnar ákvarðanatöku í samskiptamálum til að auka skilvirkni og árangur í upplýsingamiðlun og bæta aðgengi íbúa að upplýsingum.“
Vonast til að ráða yfirmann fljótlega
Eftir stóð þó að ekki hafði verið greint frá því hvernig samskiptum við fjölmiðla yrði háttað.
„Við innleiddum skipulagsbreytingar í dag sem fólust í því að skrifstofa samskiptamála var lögð niður. Við ætlum að byggja upp nýtt og minna teymi sem sinnir miðlun. Í gegnum það teymi munu samskipti við fjölmiðla fara fram. Við vonumst til að geta gengið rösklega til verks við að ráða yfirmann fyrir teymið,“ segir Hildur.
