Landsréttur hefur vísað máli eigenda Dönustaða í Dölum gegn eigendum nábýlisjarðarinnar Lambeyra til baka í hérað til nýrrar dómsmeðferðar og -uppkvaðningar á þeirri forsendu að útivist varð í málinu af hálfu Danar ehf. eiganda Lambeyra og Daða Einarssonar og fleiri gagnaðila forsvarsmanna Danar í þinghaldi 22. nóvember 2024.
Í úrskurði Landsréttar kemur fram að báðir lögmenn hefðu staðfest boðun í framangreint þinghald en ekki mætt til þinghaldsins, þar á meðal lögmaður Danar ehf., en héraðsdómari hafði fyrir fram gert ráð fyrir mætingu af þeirra hálfu.
Þar sem þingsókn féll niður af hálfu Danar ehf. hefði héraðsdómara borið að fara svo að sem segir í lögum um meðferð einkamála og fella málið niður, nema um lögmæt forföll hefði verið að ræða í skilningi sömlu laga, en í þingbók málsins kæmi ekkert fram um að svo hefði verið og heldur ekki í svari lögmanna aðila til héraðsdóms.
Dómara hefði borið að fresta málinu og boða til nýs þinghalds sem hann hefði ekki gert. Ómerkti Landsréttur því meðferð málsins frá og með þinghaldinu í nóvember 2024 og lagði fyrir héraðsdóm að taka það til nýrrar málsmeðferðar og breytti þar engu þótt lögmenn hefðu samþykkt að úrskurðurinn yrði kveðinn upp í Héraðsdómi Norðurlands vestra á Sauðárkróki.
Áratugalangar fjölskyldudeilur
Eins og mbl.is hefur fjallað um tengist málið áratugalöngum fjölskyldudeilum Daða Einarssonar við systkini sín og fjölskyldur þeirra en Daði er faðir Ásmundar Einars Daðasonar, fyrrverandi ráðherra og þingmanns, sem stundaði búskap á Lambeyrum fram til þess er hann tók þingsæti fyrir Vinstri græna, flokk sem hann síðar yfirgaf og gekk til liðs við Framsóknarflokkinn.
Árið 1958 urðu Lambeyrar til sem nýbýli úr jörð Dönustaða í eigu Einars Valdimars Ólafssonar, föður Daða og afa Ásmundar Einars. Afsalaði Skúli Jóhannsson tengdafaðir Einars sér 75 hekturum lands til þessa.
Tók Einar Dönustaði á leigu af tengdamóður sinni eftir andlát Skúla og ráku þeir feðgar, Einar og Daði, félagsbú á Lambeyrum í tæpa þrjá áratugi en árið 2003 var eignarhald á landinu fært í þrjú einkahlutafélög í eigu feðganna. Börn Einars, átta talsins, erfðu hans hlut eftir andlát hans.
Haustið 2023 urðu deilurnar um eignarhald fjórðungsins úr landi Dönustaða dómsmál. Við skráningu Lambeyra sem nýbýlis var það tiltekið að því fylgdu 75 hektarar ræktaðs lands auk fjórðungs af óskiptu landi Dönustaða. Snýst deilan um hvort téður fjórðungur tilheyri Lambeyrum eða hvort þar væri einungis heimilt að nýta beitiland Dönustaða.