Borgarráð samþykkti í dag að skipa samninganefnd sem á að semja við lóðarhafa bensínstöðvalóða um framtíð lóðanna. Ákvörðunin er tekin í kjölfar úttektar Innri endurskoðunar á hinu svokallaða bensínstöðvarmáli.
Nefndin á að ræða við olíufélög og aðra lóðarhafa um hvernig megi byggja upp lóðirnar þegar bensínstöðvar víkja. Jafnframt á hún að semja um greiðslur til Reykjavíkurborgar fyrir aukinn byggingarrétt og ný lóðarleiguréttindi.
Tillagan var samþykkt á fundi borgarráðs í dag. Fulltrúar Samfylkingarinnar sátu hjá.
Á fundinum var einnig farið yfir hvernig gengur að hrinda í framkvæmd úrbótum sem Innri endurskoðun lagði til eftir að hafa farið yfir samningaviðræður borgarinnar um bensínstöðvalóðir í tíð Dags B. Eggertssonar sem borgarstjóra.
Brot á reglum um ríkisaðstoð
Hildur Björnsdóttir borgarstjóri segir að samninganefndin hafi verið sett á laggirnar í kjölfar lögfræðilegrar rýni borgarlögmanns á því hvort reglur um ríkisaðstoð hafi verið brotnar við samningagerðina.
Rýnin var í samræmi við tillögur Innri endurskoðunar, sem lagði fram úrbótatillögur í kjölfar bensínstöðvarmálsins í október síðastliðnum. Niðurstaða borgarlögmanns var kynnt á fundinum í dag.
„Það ríkir trúnaður um kynningu borgarlögmanns, enda er þar farið rækilega yfir samnings- og réttarstöðu Reykjavíkurborgar. En við getum sagt að niðurstaðan bendi til þess að samningarnir hafi falið í sér brot á reglum um ríkisaðstoð og samkeppni. Það leiddi til þess að okkur var ráðlagt að skipa sérstaka samninganefnd sem fer í það verkefni að semja við lóðarhafana upp á nýtt um eðlilegt endurgjald fyrir þau verðmæti sem þeir fengu í hendur,“ segir Hildur.
Formaður samninganefndarinnar verður Óttar Pálsson.
Gagnrýndi verklagið
Bensínstöðvarmálið snýst um samkomulög sem Reykjavíkurborg gerði við olíufélög á árunum 2021 og 2022. Markmiðið var að flytja eða leggja niður bensínstöðvar á ákveðnum svæðum til að rýma fyrir íbúðabyggð og annarri uppbyggingu.
Málið varð umdeilt vegna þess að spurningar vöknuðu um hvort olíufélögin fengju verðmæti í formi aukins byggingarréttar án þess að borgin fengi fullt endurgjald fyrir þau.
Innri endurskoðun fór því yfir málið og skilaði skýrslu í október í fyrra. Þar var ekki gerð athugasemd við markmið samninganna en verklag borgarinnar var gagnrýnt og lagðar fram tólf tillögur að úrbótum.
Meirihluti borgarráðs segir skipun samninganefndarinnar vera lið í því að fylgja þessum tillögum eftir. Lögð er áhersla á að samningaviðræður fari fram eftir skýru verklagi og í samræmi við reglur um samkeppni og ríkisaðstoð.
Vilja raunhæft mat
Í bókun Samfylkingarinnar um málið segir að lagaleg yfirferð hafi staðfest að fyrri samkomulög hafi verið í samræmi við tilmæli Samkeppniseftirlitsins. Fulltrúarnir segja jafnframt mikilvægt að nýja samninganefndin meti verðmæti lóðanna með raunhæfum hætti.
Þeir benda á að taka verði tillit til kostnaðar við hreinsun mengaðs jarðvegs og þess tekjutaps sem olíufélögin verði fyrir ef stöðvum verði lokað fyrr en áætlað var. Annars gætu félögin ákveðið að halda áfram rekstri bensínstöðvanna á grundvelli gildandi samninga.