Í nýju fréttabréfi landlæknis um heilbrigðisupplýsingar, Talnabrunni, kemur fram að flestar mælingar sem embætti landlæknis hefur vaktað með reglubundnum hætti í tengslum við líðan fullorðinna hefur staðið í stað eða þróast til hins verra.
Talnabrunnur er rafrænt fréttabréf landlæknis sem fjallar um þróun mælinga á andlegri heilsu, svefni, streitu, einmanaleika, hamingju og velsæld fullorðinna á Íslandi yfir tíu ára tímabil, frá árinu 2016 til ársins 2025.
Fækkar í hópi þeirra sem meta andlega heilsu sína góða
Fram kemur að hlutfall karla og kvenna sem meti andlega heilsu sína góða sé jafnt, eða um 70%. Hlutfall kvenna sem meta andlega heilsu sína góða hefur þó lækkað undanfarinn áratug en ekki urðu breytingar meðal karla.
Mest fækkaði í hópi þeirra sem meta andlega heilsu sína góða meðal ungmenna á aldrinum 18–24 ára og þeirra sem eiga erfitt með að ná endum saman.
Eldra fólk hamingjusamara
Mælingar sem tengjast líðan eru jafnan lakastar meðal yngri aldurshópa en batna með hækkandi aldri. Eldra fólk greinir oftar frá betri andlegri heilsu, meiri hamingju og velsæld, minni streitu, minni fjárhagserfiðleikum og minni einmanaleika.
Jafnt og þétt hefur fækkað í hópi mjög hamingjusamra meðal karla og kvenna undanfarinn áratug en árið 2025 töldu 53% karla og 57% kvenna sig vera mjög hamingjusama/n. Fyrir 10 árum síðan voru hlutföllin hins vegar 58% meðal karla og 64% meðal kvenna.
Streita og einmanaleiki hafa aukist og dregið hefur úr hamingju. Aukning á hlutfalli þeirra sem upplifa mikla streitu í daglegu lífi skýrist fyrst og fremst af aukinni streitu meðal kvenna, en streita hefur aukist um sjö prósentustig hjá konum á síðastliðnum 10 árum.
Fjárhagsstaða hefur mikið að segja
Þá sýna mælingar að mikill munur er á líðan eftir fjárhagsstöðu.
Þau sem eiga erfitt með að ná endum saman búa við lakari andlega heilsu, meiri streitu, styttri svefn, meiri einmanaleika, minni hamingju og minni velsæld en þau sem eiga auðvelt með það. Þessi munur hefur aukist undanfarinn áratug.