Evrópa í heljargreipum hitabylgju sem loftlagsbreytingar kynda undir

Evrópa í heljargreipum hitabylgju sem loftlagsbreytingar kynda undir

Evrópa í heljargreipum hitabylgju sem loftlagsbreytingar kynda undir

Hér í Brussel hefur hitinn verið nánast óbærilegur síðustu daga; svo mikill reyndar að þegar sá sem hér skrifar gekk heimleiðis í gær, með ofurlitla golu í fangið, var tilfinningin eins og að fá hárblásara aðeins of nálægt sér.

Hitinn lækkar vissulega þegar sólin sest á kvöldin, og þá eru allir gluggar opnaðir upp á gátt (þeim er lokað og allt dregið fyrir á morgnana).

En síðustu nætur hefur hitinn alltaf verið vel yfir tuttugu gráðum, sem er ekki uppskrift að góðum nætursvefni. (Undirritaður getur hins vegar upplýst að hann hefur aðgang að svefnherbergi í niðurgröfnum kjallara, þar sem hann hefur haldið til undanfarnar nætur).

Þessi, eða álíka bragur hefur verið á lífi meira en hundrað milljón íbúa Evrópu undanfarna daga samkvæmt mati sem AFP fréttastofan gerði fyrr í vikunni. Fréttaveitan birti svo uppfært mat í morgun: í dag þurfa um 150 milljón manns að búa við meira en 35 stiga hita.

Hitaviðvaranir hafa verið gefnar út í einum fimmtán ríkjum Evrópu og þessi hitabylgja er núna hægt og bítandi að færa sig austur á bóginn; um helgina er búist við 35 til 40 stiga hita í Þýskalandi, og öðru eins í Póllandi og Ungverjalandi.

Í París var Gleðigöngunni verið aflýst; hún átti að fara fram eftir hádegi á morgun og fjölmörgum öðrum viðburðum í borginni hefur einnig verið frestað.

Aðstæðurnar eru vissulega sérstakar - en þó alls ekki einstakar; kyrrstæð lægð yfir vesturhluta Evrópu sem hefur lokað inni heitt loft sem nær ekki að stíga upp.

Sérfræðingar sem skoða veðurfar og loftslagsbreytingar segja hins vegar að hlýnandi veðurfar hafi sín áhrif, og sumir taka sterkar til orða en aðrir.

„Þessi illvíga hitabylgja í Evrópu er með fingraför loftslagsvárinnar út um allt,“ sagði Simon Stiell, yfirmaður loftslagsmála hjá Sameinuðu þjóðunum í yfirlýsingu sem hann gaf út í gær. „Þetta er nýjasta greiðslan sem við borgum fyrir mengun af völdum jarðefnaeldsneytis. Skólum er lokað, viðkvæmt fólk deyr og efnahagslífið svitnar: svona lítur loftlagsváin út og þetta er bara byrjunin.“

Sömu niðurstöðu er að finna í nýrri skýrslu hóps vísindamanna hjá samtökunum World Weather Attribution; þessi hópur rannsakar afbrigðileg tilvik veðurfars til að skilja betur tengsl þeirra við loftslagsbreytingar, og niðurstaða þeirra er að þótt veðurfarslegar orsakir hitabylgjunnar nú séu ekki óeðlilegar, þá sé hitinn mun meiri en um miðja síðustu öld - vegna þess að hitafar almennt hefur hækkað.

This June 2026 heatwave occurred under a circulation pattern broadly similar to historical analogues – Southerly Flow. However, a similar circulation pattern now produces significantly hotter temperatures than it did in the mid-20th century because the climate baseline has warmed.

Lýsingarorðið „kaldhæðið“ á mögulega ekki við í grein sem fjallar um hitabylgju - en samt: daginn áður en Stiell, yfirmaður loftslagsmála hjá Sameinuðu þjóðunum sendi frá sér yfirlýsinguna sem vitnað er í hér að ofan, átti hann að vera á viðburði um loftslagsmál í London sem bar yfirskriftina: „A London Climate Action Week Event — “Extreme Heat: Improving governance and strengthening action around the world“.

Þessum viðburði var hins vegar slaufað, eftir að bresk stjórnvöld gáfu út rauða hitaviðvörun; sama dag var hitametið fyrir júní mánuð slegið í Bretlandi, og svo reyndar aftur í gær, þegar hitamælir í bænum Yeovilton í Somerset sýndi 36,4 gráður. Gamla metið hafði staðið síðan 1976.

Banvæn hitabylgja

Hitabylgjan hefur leitt af sér ýmis konar vandræði í evrópskum samfélögum; lestarsamgöngur hafa raskast vegna þess að innviðir samgöngukerfisins þola ekki svona mikinn hita til lengdar, slólum hefur verið lokað og í Frakklandi hefur þurft að draga niður orkuframleiðslu í kjarnorkuverum því kælivatn hefur orðið of heitt.

En veðrið undanfarna daga hefur líka kostað ófá mannslíf. Vitað er um þrjú börn í Frakklandi sem hafa dáið úr ofhitnun, eftir að þau lokuðust inni í bílum, á Ítalíu hafa minnst fimm látist vegna hitabylgjunnar, og stofnun á Spáni sem fylgist með dauðsföllum og dánartíðni, telur að síðan á sunnudag hafi meira en tvö hundruð manns látist af völdum þessa veðurs.

Í Frakklandi er svo vitað um minnst fimmtiu og fimm manns sem hafa drukknað eftir að hafa dýft sér í ár og vötn, til að kæla sig; margir þeirra unglingar sem voru að synda á stöðum þar sem ekkert eftirlit var til staðar.

Arkitektúr og innviðir

Hitabylgjan síðustu daga hefur reynt á innviði Evrópuríkja - ekki aðeins hvað varðar samgöngur, heldur einnig heilbrigðis- og menntakerfi; í Frakklandi hefur þúsundum skóla verið lokað, og stjórnvöld tilkynntu í morgun að verja ætti um 130 milljónum evra (um 18 milljörðum króna) til að fjármagna loftkælikerfi og gera endurbætur á skólahúsnæði og barnaheimilum í landinu. Borgaryfirvöld í París hafa reyndar verið á útopnu síðustu daga að kaupa færanlega loftkæla fyrir skólastofur.

Hitabylgjan hefur nefnilega leitt í ljós óþægilegan sannleika: hefðir og viðmið í húsagerðarlist í mið- og norðurhluta Evrópu hafa í gegnum tíðina miðast við að halda hita inni í húsum, ekki að losna við hann - sem virkar vel í mildu og köldu veðurfari, en ekki þegar daglegur hiti dansar við fjörtíu gráðu markið.

Loftkæling er heldur ekki víða til staðar; að meðaltali eru um tuttugu prósent evrópskra heimila með loftkælingu.

Munurinn er þó talsvert mikill milli ríkja; á Ítalíu er þetta hlutfall um fimmtíu prósent og álíka hátt á Spáni og í Grikklandi, en aðeins um sjö prósent í Bretlandi. Stífar reglur um breytingar á eldra húsnæði, til dæmis í París, flækja svo málið, vilji íbúar koma fyrir færanlegum loftkælum í gluggum íbúða sinna.

#evrópa #heljargreipum #hitabylgju #loftlagsbreytingar #sem

Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/erlent/2026-06-26-evropa-i-heljargreipum-hitabylgju-sem-loftlagsbreytingar-kynda-undir-479433

📰 Aðrar fréttir

Afgreiðsla netverslunar með áfengi opnuð í Vínbúðarplássinu á Fáskrúðsfirði
📅 26.06.2026 👁️ 0
Afgreiðsla netverslunar með áfengi opnuð í Vínbúðarplássinu á Fáskrúðsfirði
Þann 1. júní var Vínbúðinni á Fáskrúðsfirði lokað. Í dag verður opnuð í sama húsnæði afgreiðsla fyrir netverslun með áfengi. Afhendingarlagerar netver...
Ragnar Freyr afþakkaði gjafir á fimmtugsafmælinu – Hvatti alla til að gera þetta í staðinn
📅 26.06.2026 👁️ 0
Ragnar Freyr afþakkaði gjafir á fimmtugsafmælinu – Hvatti alla til að gera þetta í staðinn
Læknirinn og sælkerinn Ragnar Freyr Ingvarsson varð fimmtugur fyrr á þessu ári. Auk þess að vera læknir og listakokkur er hann einnig mikill mannvinur...
Á­hyggju­efni að mark­mið kjara­samninga sé ekki að nást - Vísir
📅 26.06.2026 👁️ 0
Á­hyggju­efni að mark­mið kjara­samninga sé ekki að nást - Vísir
Hagstofan birti nýjar verðbólgutölur í morgun en vísitala neysluverðs hækkaði um 0,94% á milli mánaða. Ársverðbólga mælist nú 5,2% eða 0,1 stigi meira...
Taldi sér hafa verið mismunað á grundvelli kyns vegna notkunar kommu í atvinnuauglýsingu
📅 26.06.2026 👁️ 0
Taldi sér hafa verið mismunað á grundvelli kyns vegna notkunar kommu í atvinnuauglýsingu
Lögfræðingur taldi að sér hefði verið mismunað á grundvelli kyns þegar hún hlaut ekki ráðningu sem sviðsstjóri hjá sveitarfélaginu Skagafirði. Hún lei...
Birtu óvart nöfn aðila sem tengjast virkri rannsókn í kynningarmyndbandi tæknifyrirtækis
📅 26.06.2026 👁️ 0
Birtu óvart nöfn aðila sem tengjast virkri rannsókn í kynningarmyndbandi tæknifyrirtækis
Ísraelska tæknifyrirtækið Cellebrite birti fyrir nokkrum dögum kynningarmyndband sem var tekið upp í húsnæði embættis héraðssaksóknara. Þar mátti sjá ...
Fisk­verð í hæstu hæðum og strandveiðimenn brosa allan hringinn - Vísir
📅 26.06.2026 👁️ 0
Fisk­verð í hæstu hæðum og strandveiðimenn brosa allan hringinn - Vísir
Strandveiðisjómenn mega veiða 650 kíló í þorskígildum í hverjum róðri. Ef eingöngu er veiddur þorskur jafngildir það um 774 kílóum af óslægðum þorski....
Nýr grillþáttur fer í loftið á þriðju­dag - Vísir
📅 26.06.2026 👁️ 0
Nýr grillþáttur fer í loftið á þriðju­dag - Vísir
„Þetta er mjög litríkur og skemmtilegur hópur sem heimsækir mig, allt frá landsliðskokkum og bakarameisturum til ástríðukokka og samfélagsmiðlastjarna...
Verð­bólgan eykst þvert á spár og fisk­verð í hæstu hæðum - Vísir
📅 26.06.2026 👁️ 0
Verð­bólgan eykst þvert á spár og fisk­verð í hæstu hæðum - Vísir
Hagfræðingur ASÍ segir áhyggjuefni að ekki gangi hraðar að koma böndum á verðhækkanir og vextina. Þá fjöllum við um ástandið í Venesúela þar sem þúsun...
Nálgast hundrað þúsund fylgj­endur á Instagram og rekur sveitahótel - Vísir
📅 26.06.2026 👁️ 0
Nálgast hundrað þúsund fylgj­endur á Instagram og rekur sveitahótel - Vísir
„Ég held að alla sem hafi búið í sveit dreymi um að komast aftur til baka í þetta frelsi,“ segir Völli Snær. Þau hjónin fagna tuttugu ára brúðkaupsafm...
„Í guðanna bænum ekki apa eftir þessu“ - Vísir
📅 26.06.2026 👁️ 0
„Í guðanna bænum ekki apa eftir þessu“ - Vísir
„Þessir menn stofnuðu lífi sínu í hættu,“ skrifaði leiðsögumaðurinn Haraldur Örn Ólafsson, sem á Fjallafélagið sem býður upp á ferðir í Fálkakletti, e...
Krafðist forsjá sonar þeirra eftir að hann fékk skilaboð um drykkju leikkonunnar
📅 26.06.2026 👁️ 0
Krafðist forsjá sonar þeirra eftir að hann fékk skilaboð um drykkju leikkonunnar
Fyrrverandi eiginmanni leikkonunnar Christinu Ricci hefur verið neitað um bráðabirgðaforsjá sonar þeirra. James Heerdegen, sem var giftur leikkonunni ...
Guðjón Friðriksson skrifar: Hvað hefði Jóni Sigurðssyni þótt?
📅 26.06.2026 👁️ 1
Guðjón Friðriksson skrifar: Hvað hefði Jóni Sigurðssyni þótt?
Þeir sem hæst láta nú gegn því að Íslendingar láti reyna á samninga við Evrópusambandið er óspart farnir að veifa nafni Jóns Sigurðssonar forseta eins...
Madsen neitað um leyfi til að gifta sig - Vísir
📅 26.06.2026 👁️ 1
Madsen neitað um leyfi til að gifta sig - Vísir
Dómstóllinn úrskurðaði þetta í morgun, en fangelsisyfirvöld í Danmörku höfðu áður hafnað beiðnum Madsen um að fá heimsókn eða dagsleyfi í þeim tilgang...
Hrottaleg árás stutt frá Íslendingaslóðum á Spáni – Marokkóskur innflytjandi lamdi mann ítrekað í höfuðið með hamri
📅 26.06.2026 👁️ 0
Hrottaleg árás stutt frá Íslendingaslóðum á Spáni – Marokkóskur innflytjandi lamdi mann ítrekað í höfuðið með hamri
Einn maður er í lífshættu á sjúkrahúsi og annar hlaut skurð á hálsi eftir hrottalega árás í bænum Torre Pacheco á Spáni síðdegis á fimmtudag. Lögregla...
Orion tann­lækna­stofa stækkar og opnar stofu á 5 stjörnu hóteli í mið­bæ Búda­pest - Vísir
📅 26.06.2026 👁️ 0
Orion tann­lækna­stofa stækkar og opnar stofu á 5 stjörnu hóteli í mið­bæ Búda­pest - Vísir
„Þetta er breyting sem við höfum unnið að í langan tíma og við erum gríðarlega spennt fyrir,“ segir Valþór Sverrisson, einn eigenda og framkvæmdastjór...
Nöfn úr rann­sókn sáust í kynningarmyndbandi - Vísir
📅 26.06.2026 👁️ 1
Nöfn úr rann­sókn sáust í kynningarmyndbandi - Vísir
Morgunblaðið greindi fyrst frá málinu í morgun. Þar kom fram að nöfn fimm einstaklinga hefðu sést í myndbandinu, auk málsnúmers. Vísir fjallaði í viku...
22 vilja vera upplýsingafulltrúi dómsmálaráðuneytisins
📅 26.06.2026 👁️ 1
22 vilja vera upplýsingafulltrúi dómsmálaráðuneytisins
Alls bárust 22 umsóknir um starf upplýsingafulltrúa dómsmálaráðuneytisins sem var auglýst laust til umsóknar í mánuðinum.Freyr Gígja Gunnarsson, þáver...
Ivanka Trump og Jared Kushner á Ís­landi - Vísir
📅 26.06.2026 👁️ 1
Ivanka Trump og Jared Kushner á Ís­landi - Vísir
„Ég get staðfest að hjónin eru á landinu í einkaerindum,“ segir Ægir Þór Eysteinsson, fjölmiðlafulltrúi utanríkisráðuneytisins, í samtali við Vísi. Ha...
Borgin skipar samninganefnd vegna bensínstöðvalóða
📅 26.06.2026 👁️ 1
Borgin skipar samninganefnd vegna bensínstöðvalóða
Borgarráð hefur samþykkt að skipa samninganefnd sem hefur það hlutverk með höndum að semja við lóðarhafa bensínstöðvalóða um uppbyggingu lóðanna og en...
Vélfag tapar á æðsta dómstigi: Ekki ráðherra að aflétta frystingu fjármuna
📅 26.06.2026 👁️ 0
Vélfag tapar á æðsta dómstigi: Ekki ráðherra að aflétta frystingu fjármuna
Vélfag tapar á æðsta dómstigi: Ekki ráðherra að aflétta frystingu fjármuna Vélfag tap­aði dóms­máli gegn ut­an­rík­is­ráð­herra, en fé­lag­ið er sagt ...
Haukur spáir að fleiri skipulagsbreytingar verði erfiðar: „Hitt er verra ef pólitískar forsendur liggja að baki“
📅 26.06.2026 👁️ 0
Haukur spáir að fleiri skipulagsbreytingar verði erfiðar: „Hitt er verra ef pólitískar forsendur liggja að baki“
Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur segir uppsagnirnar í Ráðhúsi Reykjavíkur í gær vera einsdæmi hér á landi, telur hann að þær eigi sér bæði fagle...
Þessi sóttu um starf upp­lýsinga­full­trúa - Vísir
📅 26.06.2026 👁️ 2
Þessi sóttu um starf upp­lýsinga­full­trúa - Vísir
Þetta kemur fram í tilkynningu.  Freyr Gígja Gunnarsson, sem er nú upplýsingafulltrúi, hefur gegnt starfinu síðan í apríl en það hafði ekki verið augl...
Ivanka Trump og Jared Kushner á ferð um Ísland
📅 26.06.2026 👁️ 1
Ivanka Trump og Jared Kushner á ferð um Ísland
Ivanka Trump, dóttir Donalds Trumps Bandaríkjaforseta, er á Íslandi ásamt eiginmanni sínum Jared Kushner. Hjónin eru á landinu í einkaerindum og dvelj...
Bakkað ef fólk hefur nógu hátt og kærir nógu mikið
📅 26.06.2026 👁️ 1
Bakkað ef fólk hefur nógu hátt og kærir nógu mikið
Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Samhjálpar, segir að andstaða við samfélagslega þjónustu hafi farið vaxandi síðustu árin og telur synju...
Wimbledon 2026 draw: Serena Williams to face Maya Joint in first round, while Jack Draper plays Taylor Fritz
📅 26.06.2026 👁️ 0
Wimbledon 2026 draw: Serena Williams to face Maya Joint in first round, while Jack Draper plays Taylor Fritz
American superstar Serena Williams will make her highly-anticipated singles comeback at Wimbledon against Australia's Maya Joint in the first round.
Aftur sveiflast verðbólgan upp í 5,2 prósent
📅 26.06.2026 👁️ 1
Aftur sveiflast verðbólgan upp í 5,2 prósent
Aftur sveiflast verðbólgan upp í 5,2 prósent Verð­bólga hef­ur mælst í kring­um 5,2 pró­sent allt þetta ár. Hún hækk­ar lít­il­lega á milli mán­aða. S...
Eigendum bensínstöðvalóða verði gert að borga
📅 26.06.2026 👁️ 1
Eigendum bensínstöðvalóða verði gert að borga
Borgarráð samþykkti tillögu Hildar Björnsdóttur borgarstjóra í gær um að skipa nefnd til að semja við lóðarhafa bensínstöðvalóða um uppbyggingu og end...
Verðbólgan er 5,2 prósent
📅 26.06.2026 👁️ 1
Verðbólgan er 5,2 prósent
Verðbólga var 5,2 prósen í júní og jókst um 0,1 prósentustig milli mánaða.Í tilkynningu frá Hagstofunni segir að kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæð...
Hart deilt: Afrán hvala nemi milljónum tonna á ári – „Drepum allt sem við getum til að fá peninga“
📅 26.06.2026 👁️ 1
Hart deilt: Afrán hvala nemi milljónum tonna á ári – „Drepum allt sem við getum til að fá peninga“
Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, segir að það þurfi að ræða hvalveiðar með vísindum en ekki tilfinningum, afrán hvala á fiski ...
Konungur á meðal skattakónga Bret­lands - Vísir
📅 26.06.2026 👁️ 1
Konungur á meðal skattakónga Bret­lands - Vísir
Skattgreiðslur Karls konungs koma honum á lista yfir hundrað mestu skattakónga Bretlands, að sögn breska ríkisútvarpsins. Þær námu 12,9 milljónum pund...
Bylgju­lestin mætir á Hjarta Hafnar­fjarðar á laugar­dag - Vísir
📅 26.06.2026 👁️ 1
Bylgju­lestin mætir á Hjarta Hafnar­fjarðar á laugar­dag - Vísir
Bylgjan býður upp á skemmtilegan sumarvarning í Lukkuhjólinu og gjafabréf frá N1 verða í boði, frískandi 7up Pink drykkir, Kitkat og áskrift að Sýn+. ...
Á­fengis­bann í París um helgina - Vísir
📅 26.06.2026 👁️ 1
Á­fengis­bann í París um helgina - Vísir
Frá og með hádegi í dag og fram til klukkan sjö í fyrramálið verður áfengisneysla á almannafæri bönnuð. Slíkt bann verður svo einnig í gildi á morgun ...
DJ and presenter Trevor Nelson taking a break from work due to health issues
📅 26.06.2026 👁️ 1
DJ and presenter Trevor Nelson taking a break from work due to health issues
The Radio 2 presenter said he was now "concentrating on getting better".
Pride aflýst og áfengisneysla á almannafæri bönnuð í hitabylgju
📅 26.06.2026 👁️ 1
Pride aflýst og áfengisneysla á almannafæri bönnuð í hitabylgju
Lögregluyfirvöld í París hafa gert skipuleggjendum Pride-göngunnar að aflýsa henni vegna hitabylgjunnar sem gengur yfir Evrópu. Veðurspár gera ráð fyr...
Ein um­fangs­mesta drónaárásin á Rúss­land frá upp­hafi stríðsins - Vísir
📅 26.06.2026 👁️ 1
Ein um­fangs­mesta drónaárásin á Rúss­land frá upp­hafi stríðsins - Vísir
Rússneska varnarmálaráðuneytið segir að drónarnir hafi verið stöðvaðir yfir tólf rússneskum héruðum, Krímskaga, Svartahafi og Azov-hafi. AP-fréttastof...
Lífstíðarfangelsi fyrir árás á jólamarkað
📅 26.06.2026 👁️ 2
Lífstíðarfangelsi fyrir árás á jólamarkað
Taleb Jawad al-Abdulmohsen hefur verið dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir árás á jólamarkað í Magdeburg í Þýskalandi í desember 2024. Sex féllu og á fjó...
Fær ekki bætur fyrir sótt­kví vegna Covid-19 - Vísir
📅 26.06.2026 👁️ 1
Fær ekki bætur fyrir sótt­kví vegna Covid-19 - Vísir
Maðurinn framvísaði hvorki vottorði um bólusetningu né gekkst hann undir sýnatöku þegar hann kom til landsins frá Englandi í nóvember árið 2021. Það g...
Samherjabörnin greiddu lán foreldra sinna með eignarhlut í stærsta eiganda Samherja
📅 26.06.2026 👁️ 1
Samherjabörnin greiddu lán foreldra sinna með eignarhlut í stærsta eiganda Samherja
Samherjabörnin greiddu lán foreldra sinna með eignarhlut í stærsta eiganda Samherja Lán­ið sem Þor­steinn Már Bald­vins­son og Helga Stein­unn Guð­mun...
Leitað í rústum bygginga og þúsunda er saknað - Vísir
📅 26.06.2026 👁️ 1
Leitað í rústum bygginga og þúsunda er saknað - Vísir
Tala látinna hefur farið hækkandi og nú er staðfest að 235 hafi látist og rúmlega 4000 slasast en óttast er að þessar tölur eigi eftir að hækka til mu...
Telur gagn­rýni sveitar­fé­laganna ekki eiga við rök að styðjast - Vísir
📅 26.06.2026 👁️ 1
Telur gagn­rýni sveitar­fé­laganna ekki eiga við rök að styðjast - Vísir
Sveitarfélögin sökuðu í vikunni ríkið um að ganga á bak orða sinna og brjóta samkomulag ríkis og sveitarfélaganna um ábyrgðarskiptingu varðandi börn m...
Neitaði að yfir­gefa strætis­vagninn - Vísir
📅 26.06.2026 👁️ 1
Neitaði að yfir­gefa strætis­vagninn - Vísir
Í tilkynningu frá lögreglu segir að lögregla hafi farið á vettvang og neitaði maðurinn þá að segja til nafns og var hann því handtekinn. Þegar komið v...
Óttast rúss­neskar ögranir gegn Eystra­salts­ríkjunum - Vísir
📅 26.06.2026 👁️ 1
Óttast rúss­neskar ögranir gegn Eystra­salts­ríkjunum - Vísir
Lettneska leyniþjónustan greindi frá því á mánudag að hún sæi merki um að Rússar væru að undirbúa hernaðarlegar ögranir gegn Eystrasaltsríkjunum eða P...
Kveðjurnar svolítið eins og skrattinn úr sauðarleggnum
📅 26.06.2026 👁️ 1
Kveðjurnar svolítið eins og skrattinn úr sauðarleggnum
Það er til siðs við jarðarfarir að kveðjur séu bornar frá þeim sem ekki áttu heimangengt í útförina. Siðurinn er gamall og má rekja allt aftur til þei...
Vilja skoða að afnema kveðjur í jarðarförum

All­víða skúrir og lægð nálgast - Vísir
📅 26.06.2026 👁️ 1
All­víða skúrir og lægð nálgast - Vísir
Á vef Veðurstofunnar segir að hiti verði á bilinu átta til sextán stig, hlýjast á Austurlandi. „Í nótt nálgast lægð úr suðri og það snýst í austanátt ...
17 ára drengur laminn til bana í Frakklandi – Fimm ákærðir fyrir morð
📅 26.06.2026 👁️ 1
17 ára drengur laminn til bana í Frakklandi – Fimm ákærðir fyrir morð
Sautján ára drengur, Louis að nafni, lést á sjúkrahúsi eftir að hafa orðið fyrir hrottalegri árás í borginni Narbonne í suðurhluta Frakklands. Fimm un...
„Kjóllinn markaði nýtt upp­haf í mínu lífi“ - Vísir
📅 26.06.2026 👁️ 1
„Kjóllinn markaði nýtt upp­haf í mínu lífi“ - Vísir
Hvað finnst þér skemmtilegast við tískuna? Hvað það er rými fyrir öll til að finna sig og sinn stíl og fara ólíkar leiðir. Ég elska að sjá einstakling...
Kaldi og rigning um helgina
📅 26.06.2026 👁️ 1
Kaldi og rigning um helgina
Veðurspáin fyrir helgina er ekki mjög sumarleg. Það heldur áfram að rigna og von er á nokkrum vindi. Víkjum að hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu...
Main suspect held in prison for fatal assault of British tourist in Los Cristianos
📅 26.06.2026 👁️ 1
Main suspect held in prison for fatal assault of British tourist in Los Cristianos
A court in Tenerife has ordered the pre-trial detention in prison of one of three men arrested in connection with the death of an 88-year-old British ...
Vilja semja aftur um bensínstöðalóðir í borginni - Vísir
📅 26.06.2026 👁️ 1
Vilja semja aftur um bensínstöðalóðir í borginni - Vísir
Þrætt hefur verið um bensínstöðvalóðir sem fyrrverandi meirihluti samdi um við olíufélögin á sínum tíma. Gegn því að loka bensínstöðvum í íbúðahverfum...