Morgunblaðið greindi fyrst frá málinu í morgun. Þar kom fram að nöfn fimm einstaklinga hefðu sést í myndbandinu, auk málsnúmers.
Vísir fjallaði í vikunni um myndbandið, þar sem íslensk yfirvöld eru notuð sem dæmi um hvernig hugbúnaður Cellebrite geti nýst við rannsóknir á fjármálabrotum og skipulagðri brotastarfsemi.
Í myndbandinu var meðal annars fjallað um svokallað Operation Raccoon-mál, peningaþvættismál sem hófst árið 2018 og snerist um að fjöldi ungmenna var fenginn til að skipta íslenskum krónum yfir í evrur. Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari sagði í samtali við Vísi að málið biði ákvörðunar um hvort ákæra yrði gefin út.
Nöfnin sem sáust á skjánum tengjast rannsókn embættisins á máli sem varðar misnotkun á kerfisvillu Reiknistofu bankanna, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins.
Ólafur Þór segir í samtali við fréttastofu að embættið hafi orðið þess áskynja að nöfnin sæjust í myndbandinu. Í kjölfarið hafi verið gerðar athugasemdir og upplýsingarnar teknar út.
Myndbandið hafði verið birt á Youtube en hefur nú verið tekið niður.