Alls bárust 22 umsóknir um starf upplýsingafulltrúa dómsmálaráðuneytisins sem var auglýst laust til umsóknar í mánuðinum.
Freyr Gígja Gunnarsson, þáverandi fréttamaður á RÚV, var ráðinn tímabundið í stöðuna án auglýsingar í apríl til eins árs.
Staðan var síðan auglýst fyrr í mánuðinum, en stuttu áður hafði Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, þingmaður Miðflokksins, vakið athygli á því á þingi að staðan hefði þá enn ekki verið auglýst.
Umsækjendur eru:
- Arnar Freyr Hrólfsson, verkstjóri
- Björn Teitsson, verkefnastjóri
- Alla Moiseeva, málastjóri
- Mobareka Jalazada, þjónustufulltrúi
- Baldvin Pálsson, starfsnemi
- Andri Már Hagalín, eftirlitsfulltrúi
- Guðmundur Jónsson, þjónustustjóri
- Hildur Edda Einarsdóttir, túlkandi
- Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir, fréttamaður
- Rúnar Pálmason, upplýsingafulltrúi Landsbankans
- Hringur Árnason, móttökuritari
- Ásta Sigríður Guðjónsdóttir, markaðssérfræðingur
- Pétur Matthías Sæmundsson, lagerstjóri
- Jóhanna Heiðdal Sigurðardóttir, hótelstjóri
- Hanna Björt Kristjánsdóttir, lögfræðingur
- Freyr Gígja Gunnarsson, upplýsingafulltrúi
- Óli Kristján Ármannsson, ráðgjafi
- Hrafnhildur B. Stefánsdóttir, upplýsinga- og fræðslufulltrúi
- Hera Melgar Aðalheiðardóttir, verkefnastjóri
- Runólfur Trausti Þórhallsson, knattspyrnuþjálfari
- Þórdís Hadda Yngvadóttir, teymisstjóri
- Gréta Hauksdóttir, deildarfulltrúi