Þann 1. júní var Vínbúðinni á Fáskrúðsfirði lokað. Í dag verður opnuð í sama húsnæði afgreiðsla fyrir netverslun með áfengi. Afhendingarlagerar netverslana með áfengi hafa fram til þessa verið starfræktir á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri.
Það er vefverslunin Sante sem er að flytja áfengislager inn í gamla húsnæði Vínbúðarinnar í Kaupfélagshúsinu á Fáskrúðsfirði og opnar síðar í dag fyrir afhendingu á áfengi í samstarfi við Kjörbúðina á Fáskrúðsfirði.
Vefverslun með áfengi er á gráu svæði lagalega og eitt af því sem áhöld hafa verið um er hvort að lager megi vera innanlands. Lögregla hefur sagt í fjölmiðlum að það megi ekki. Erlend vefverslun með áfengi er hins vegar lögleg.
Hefur ekki áhyggjur af lagalegri stöðu
Dómur féll í Héraðsdómi Reykjaness í apríl þar sem starfsemi sambærileg þeirri sem verður haldið úti á Fáskrúðsfirði var dæmd ólögleg. Þar var eigandi Smáríkisins dæmdur til þess að greiða 100 þúsund króna sekt fyrir brot á áfengislögum þegar hann seldi þriggja lítra belg af hvítvíni í gegnum vefsíðu sem var reyndar heimsendur. Þetta var talið brot gegn einkaleyfi ÁTVR. Málinu hefur verið áfrýjað til Landsréttar.
Arnar Sigurðsson eigandi Sante segist ekki hafa áhyggjur af lagalegri stöðu netverslunar með áfengi.
„Þessi dómur var náttúrulega eins manns dómur, algerlega órökstuddur og algjörlega fráleitur. Allur málatilbúnaður og dómurinn algjörlega órökstuddur, honum er að sjálfsögðu bara áfrýjað til Landsréttar og hugsanlega þaðan til Hæstaréttar
þannig að nei, nei.“
Þannig að þið eigið ekki von á því að lenda í neinum meiri lagalegum vandræðum hérna í nýju lögregluembætti?
„Nei, nei, umrætt mál sem þú minntist á, það er bara í sínu lögformlega ferli.“
Af hverju Fáskrúðsfjörður?
„Við fengum erindi frá bæjarbúum eftir að ríkið yfirgaf byggðarlagið þar sem menn óskuðu eftir að fá þessa þjónustu í bæinn og þess vegna erum við að opna hérna,“ segir Arnar.
Það vakti óánægju meðal Fáskrúðsfirðinga þegar áform ÁTVR um lokun Vínbúðarinnar voru kynnt. Íbúasamtökin á staðnum sendu bréf á forstjórann til að lýsa óánægju sinni, óska eftir rökstuðningi og fara fram á endurskoðun ákvörðunarinnar. Í svari forstjórans segir að ÁTVR starfi undir almennri hagræðingarkröfu frá eiganda sínum, íslenska ríkinu. Ákvörðun sé tekin að vel ígrunduðu máli og á rekstrarlegum forsendum; þéttleiki Vínbúða á Austurlandi hafi verið meiri í samanburði við íbúafjölda en annars staðar á landinu.
Arnar segir rekstur Sante vel geta gengið á Fáskrúðsfirði. „Já hér erum við í samstarfi við Kjörbúðina á staðnum þannig að starfsmenn hér sjá um alla afgreiðslu þannig að það er nú eitt og Sante, þar fyrir utan, flytur inn nánast allt vín beint og milliliðalaust þannig að skiljanlega á ÁTVR erfitt með að keppa við það.“