Verðbólga var 5,2 prósent í júní og jókst um 0,1 prósentustig milli mánaða.
„Fyrst þarf að segja að þetta er talsvert mikil hækkun milli mánaða,“ segir Halla Gunnarsdóttir, formaður VR.
„Það sem blasir núna við er það sem við höfum séð stefna í lengi, að forsendur kjarasamninga muni bresta í haust. Það er bara mjög alvarleg staða,“ bætir hún við.
Hægt er að segja kjarasamningunum frá 2024 upp í haust ef ársverðbólga mælist yfir 4,7 prósentum. ASÍ, Samtök atvinnulífsins og stjórnvöld eiga í viðræðum um þessa stöðu.
Halla gagnrýnir verðhækkanir hjá fyrirtækjum.
„Við lítum svo á að fyrirtækin hafi sýnt af sér fullkomið ábyrgðarleysi á gildistíma þessara kjarasamninga. Þau áttu að reyna að halda aftur af verðhækkunum.“
Verðhækkanir keyri áfram verðbólguna.
„Þessi tilraun til að höfða til ábyrgðarkenndar fyrirtækja hefur mjög litlu skilað. Þannig að við erum að horfa á verðhækkanir sem eru að keyra áfram verðbólguna. Umtalsvert af þeim er innanlandsvandamál,“ segir Halla.
„Það er ofboðslega margt búið að hækka, innlend matvara, húsaleiga, húsnæðiskostnaður, svo höfum við séð gjaldskrárhækkanir sveitarfélaga. Þetta var bara ekki samkomulagið. Við sjáum það að það eru sannarlega ekki allir að spila með, það er búið að vera þak á kjarasamningsbundnum hækkunum, en ekki þak á neinu öðru,“ bætir hún við.
Það sem hefur mest áhrif á verðbólgumælingu í júní er hækkandi flugfargjöld til útlanda, gistiþjónusta hækkaði auk kostnaðar vegna búsetu í eigin húsnæði.
„Við höfum áhyggjur af þessari stöðu, við höfum verið mjög hörð á því að við þurfum að sjá einhverjar breytingar í sumar, áður en forsenduákvæðin koma til umræðu, ef við eigum að geta farið inn í okkar bakland og lagt til að okkar kjarasamningar haldi. En við getum ekki farið inn í baklandið og sagt nú tökum við á okkur tvö erfið ár og vonum það besta. Hér verða fleiri að spila með.“