Brynjar Karl Sigurðsson, þjálfari Aþenu, segir ákvörðun um að leggja Mannréttindastofu Reykjavíkurborgar niður vera eðlilega í ljósi þess að borgin sjálf hafi verið einn stærsti þátturinn í þeirri mismunun og jaðarsetningu sem stofunni hafi verið ætlað að berjast gegn.
Í Facebook færslu sinni segir Brynjar að þótt hugmyndin að Mannréttindastofu hafi hugsanlega verið góð hafi hún aldrei getað sinnt hlutverki sínu þar sem hún hafi verið hluti af sama kerfi og henni hafi verið ætlað að veita aðhald.
„Er Reykjavíkurborg treystandi til að halda sjálfri sér ábyrgri þegar kemur að mannréttindum, mismunun og kerfislægu misrétti? Einfalt svar: Nei,“ skrifar hann.
Segir borgina mismuna börnum
Brynjar segist vinna innan kerfis borgarinnar með mjög jaðarsettum hópi barna og fullyrðir að Reykjavíkurborg sé sjálf einn stærsti þátturinn í þeirri jaðarsetningu.
Hann segir jafnframt að Mannréttindastofa hafi aldrei tekið upp mál sem Aþena hafi barist fyrir árum saman gagnvart íþróttaráði Reykjavíkurborgar.
„Er Reykjavíkurborg að mismuna börnum í Reykjavík? Sorglega mikið,“ skrifar hann.
Kallar mannréttindastefnu borgarinnar dyggðarskreytingu
Brynjar segir mannréttindahugsjón borgarinnar of oft birtast í fallegum orðum og stefnum án þess að raunverulegar breytingar verði fyrir þá sem standi höllum fæti. Hann telur að þegar réttindi barna ráðist af geðþótta þeirra sem fari með völd sé ekki lengur um mannréttindi að ræða heldur forréttindi.
Segir verk nýs meirihluta skipta máli
Í lok færslunnar segir Brynjar að nú verði áhugavert að fylgjast með nýjum meirihluta Reykjavíkurborgar og hvort hann sýni í verki að hann ætli að taka á þeim vandamálum sem Brynjar telur hafa viðgengist innan borgarkerfisins.