Fólks er enn leitað í rústum bygginga í Venesúela þar sem jarðskjálftar af stærðinni 7,5 og 7,2 riðu yfir á miðvikudagskvöld. Jarðskjálftarnir voru þeir stærstu sem riðið hafa yfir Venesúela síðan árið 1900. Aðeins 38 sekúndur voru á milli þeirra.
Í það minnsta 235 eru látnir og 4.300 slasaðir en óttast er að þeir séu mun fleiri. Verst er ástandið í La Guaira-héraði. Þar hafa meira en 100 byggingar hrunið til grunna.
Hélt sér í dyrakarminn
Heyrst hefur í fólki undir rústunum kalla á hjálp. Einni konu hefur verið bjargað lifandi.
„Þegar jarðskjálftinn reið yfir hélt ég eins fast og ég gat í dyrakarminn. Svo fast að ég braut á mér fingurinn. Ég hélt mér fast í dyrakarminn þangað til gólfið hrundi,“ segir konan í myndskeiði frá breska ríkisútvarpinu, BBC, rétt eftir að henni var bjargað.
Sérhæfð björgunarsveit á vegum Sameinuðu þjóðanna og björgunarsveitir frá ýmsum þjóðum komu til landsins í gær. Fjöldi þjóða í Evrópu, Ameríku og Asíu hefur boðið fram aðstoð.
18 tonn af hjálpargögnum frá Sviss
80 björgunarsveitarmenn, 18 tonn af hjálpargögnum og átta leitarhundar bárust frá Sviss í morgun samkvæmt ríkisútvarpi Venesúela.
Björgunarsveitarmenn með hjálpargögn hafa einnig komið frá Mexíkó, að sögn Delcy Rodríguez, starfandi forseta Venesúela. Þá hefur háttsettur herforingi verið sendur frá Bandaríkjunum til að hafa yfirumsjón með stuðningi varnarmálaráðuneytisins við hjálparstarf.Bandaríkjuum til að hafa yfirumsjón með stuðningi varnarmálaráðuneytisins við hjálparstarf.
Sjúkrahús yfirfull
Mikill fjöldi fólks hefur misst heimili sín. Víða treystir fólk sér ekki til að dvelja í byggingum sem hafa orðið fyrir skemmdum og kýs að sofa utandyra.
Læknir í La Guaira-héraði sagði við breska ríkisútvarpið að tvö helstu sjúkrahúsin væru gjörsamlega yfirfull. Sjúkrahús á þessum slóðum hefðu ekki burði til að sinna þessum mikla fjölda fólks og brýnn skortur væri á lyfjum og sjúkragögnum.
Upptök skjálftanna voru rúmlega 150 kílómetra vestur af höfuðborginni Caracas. Þeir fundust einnig í nokkrum nágrannaríkjum Venesúela, þar á meðal Kólumbíu, Brasilíu og Curaçao.