Hvalveiðitímabilið 2026 hófst hér á landi seint á föstudagskvöldið 19. júní þegar hvalveiðiskipin Hvalur 8 og Hvalur 9 héldu til veiða. Með upphafi veiðanna snýr einn umdeildasti umhverfisverndarsinni sögunnar, Paul Watson, sjónum sínum aftur að Íslandi.
Í nýrri færslu á samfélagsmiðlum segir Watson samtökin sín tilbúin til að ganga hart fram til að stöðva það sem hann kallar ólöglegar veiðar.
Hann segir að þrátt fyrir ýmsar stjórnsýsluhindranir og erfiðleika við að fá fána á skipið sitt, The Bandero, sé það nú á fullri ferð til landsins.
Samtök hans, Captain Paul Watson Foundation, hafa boðað beinar aðgerðir undir yfirskriftinni „Operation 86“ eða aðgerð 86, til að reyna að stöðva veiðar Hvals hf. í sumar.
Hvað gerðist 1986?
Heiti aðgerðarinnar vísar til atburðar í nóvember árið 1986 sem vakti heimsathygli. Þá laumuðust tveir liðsmenn Sea Shepherd, þeir Rod Coronado og David Howitt, inn í hvalstöðina í Hvalfirði og eyðilögðu tölvur og vélar með sleggjum.
Sömu nótt fóru þeir í Reykjavíkurhöfn og sökktu tveimur af fjórum hvalveiðiskipum landsins, Hvali 6 og Hvali 7, með því að opna botnlokur. Vélarrúmin fylltust af sjó og sökktu á um hálftíma. Enginn slasaðist en tjónið nam tugum milljónum króna.
Paul Watson lýsti yfir ábyrgð á skipulagningunni og segist nú ætla að „ljúka því sem við byrjuðum árið 1986“.
Ný samtök en sami maður
Margir tengja Paul Watson við Sea Shepherd, samtökin sem hann stofnaði árið 1977. Hins vegar slitnaði upp úr samstarfinu árið 2022 eftir innanbúðardeilur.
Watson hefur haldið því fram að Sea Shepherd hafi breyst í „alþjóðlegt stórfyrirtæki“ sem vildi færa sig fjær þeim aðferðum sem hann trúir á: beinum og hörðum aðgerðum án ofbeldis (e. aggressive non-violence). Hann stofnaði í kjölfarið Captain Paul Watson Foundation og það eru þessi nýju samtök sem standa að baki mótmælunum við Ísland í ár.
Hvalveiðitímabilið hófst seint í maí og hafa fyrstu langreyðarnar þegar verið dregnar á land. Baráttan í ár hefur fengið aukinn meðbyr ytra, en tónlistarmaðurinn Moby hefur meðal annars lagt samtökum Watsons lið.
Paul Watson, sem var nýverið leystur úr haldi á Grænlandi vegna annarra aðgerða gegn hvalveiðum, stefnir á að taka þátt í mótmælum á Íslandi sumar. Hann áætlar að skip hans komi til landsins helgina 27.-28. júní.