Í frétt CNN segir að um sé að ræða hina 528 metra háu CITIC Tower, einnig þekkt sem China Zun, en í henni eru 109 hæðir.
Fram kemur að kona hafi verið flutt á sjúkrahús með höfuðáverka en ekki sé ljóst hvort fleiri hafi slasast.
Lögregla og sjúkralið eru með mikinn viðbúnað á svæðinu.
Í erlendum fjölmiðlum segir að óstaðfest gögn frá Flightradar24 bendi til þess að vélin hafi vikið umtalsvert frá fyrirhugaðri flugleið.
Um er að ræða litla vél af gerðinni Sunward SA60L Aurora.