Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, segir sífellt ljósara að forsendur kjarasamninga séu við það að bresta, líkurnar á forsendubresti séu nánast öruggar. „Þegar samningarnir voru undirritaðir tók íslenskt verkafólk á sig afar hófstilltar launahækkanir. Það var gert af ábyrgð og með það að markmiði að stuðla að lægri verðbólgu og þar með lægri vöxtum til hagsbóta fyrir heimilin í landinu,“ segir Vilhjálmur í færslu á Facebook. „En það var aldrei ætlunin að verkafólkið bæri þessa byrði eitt.“
Vilhjálmur segir kjarasamninga við það að bresta: „Það var aldrei ætlunin að verkafólkið bæri þessa byrði eitt“