Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir verðbólgu ekki langt frá því sem stefnt var að. Vandinn sé bæði innfluttur og heimatilbúinn.
„Ef ekki hefði komið til stríðs í Íran og ef hið opinbera hefði ekki hækkað gjaldskrár eins og gert var um síðustu áramót þá held ég að megi færa rök fyrir því að verðbólga væri innan vikmarka kjarasamninganna,“ sagði Bjarni Benediktsson í hádegisfréttum.
Verðbólga í júní var 5,2 prósent og jókst um 0,1 prósentustig milli mánaða. Formaður VR sagði fyrirtæki sýna af sér fullkomið ábyrgðarleysi með verðhækkunum og stefna þannig kjarasamningum í hættu.
Bjarni segir það rangtúlkun á stöðunni að skella skuldinni á fyrirtækin og segir laun hafa hækkað umfram það sem samið var um í síðustu kjaralotu.
„Við erum með þetta viðmiðunarákvæði í kjarasamningum til að tryggja ákveðinn kaupmátt í kjarasamningunum, og það er hægt að mæla það að kaupmáttaraukning hefur verið meiri, og það hefur valdið meiri eftirspurn í hagkerfinu heldur en að var stefnt,“ segir Bjarni.
Hann segir engu að síður mikilvægt að halda áfram samstilltum aðgerðum gegn verðbólgu.
„Við höfum talað fyrir því að nú þurfi aðilar vinnumarkaðarins og stjórnvöld að taka höndum saman. Við erum enga óravegu frá því að ná stjórn á verðbólgunni; við erum nokkrum kommum úr einu prósenti frá því að vera með verðbólguna á þeim stað sem að var stefnt. Að sjálfsögðu viljum við ná meiri árangri og komast innan vikmarka Seðlabanka Íslands um verðbólgu. Þetta tel ég að sé raunhæft að gera ef menn gefast ekki upp á verkefninu.“