Smábarn deyr eftir að því var bjargað úr heitum bíl
Í hitabylgjunni í Frakklandi fannst smábarn meðvitundarlaust í heitum bíl og var flutt á sjúkrahús, þar sem það lét lífið. Fleiri börn hafa látið lífið með sama hætti á síðustu dögum í banvænni hitabylgju sem skellur á Evrópu.
Annað barn lætur lífið í hitabylgjunni í Frakklandi. Smábarn fannst í heitum bíl í Marseille og var flutt á sjúkrahús þar sem það lét lífið, samkvæmt yfirvöldum í Frakklandi.
Almannavarnir greindu frá því í dag að 18 mánaða gamalt barn hefði verið flutt á barnaspítala eftir að það fannst í bíl á bílastæði háskólasjúkrahússins La Timone á þriðjudag. Barnið var þá í lífshættulegu ástandi vegna ofhitnunar, sem verður þegar líkamshiti hækkar verulega yfir eðlileg mörk.
Fleiri börn látið lífið
Áður hafði þriggja ára drengur látið lífið eftir að það lokaðist inni í heitum bíl í bænum Saint-Gratioen. Foreldrar hans töldu að drengurinn væri að leggja sig þar til þeir fundu hann meðvitundarlausan í bílnum, þar sem hann virðist hafa lokast inni með barnalæsingu. Endurlífgunartilraunir foreldra og síðar slökkviliðs báru ekki árangur.
Enn fyrr fundust lík tveggja barna, tveggja og fjögurra ára, í bíl fjölskyldu þeirra á bílastæði í íbúðarhverfi í bænum Carpentras í suðurhluta landsins.
Fjöldi ungs fólks drukknað
Þá hafa að minnsta kosti 55 drukknað við að reyna að kæla sig niður í ám og vötnum, mest allt ungt fólk. Enn er óttast að fjöldi látinna muni aukast áður en yfir líkur.
Hitamet hafa verið slegin í Frakklandi í vikunni, sem og víðar í Evrópu. Talið er að um 150 milljónir manns í álfunni þurfi að þola hita sem fer yfir 35°C í dag Enn fleiri, eða um 420 milljónir, þurfa að þola hita sem fer yfir 30°C.

Meðfylgjandi mynd var tekin af hitastigi yfirborðs jarðar af Copernicus Sentinel-3 gervitunglinu miðvikudaginn 23. júní. Gögnin voru tekin síðla morguns að staðartíma.
Litirnir á myndinni ná frá fjólubláum og dökkrauðum litum (sem sýna yfirborðshita allt að 55°C, meðal annars á svæðum í miðhluta Spánar, vesturhluta Frakklands og Norður-Afríku) yfir í ljósbláa liti sem tákna lægra hitastig á fjallasvæðum. Svæði sem voru hulin skýjum eru sýnd með hvítum lit.
Tölurnar vísa til yfirborðshita, það er að segja hita á jörðu, malbiki, sandi og svo framvegis, en ekki lofthita. Þegar fjallað er um það í fréttum að lofthitinn sé 38°C getur yfirborðshitinn á malbiki eða beru landi auðveldlega farið yfir 50°C.
Yfirborðshiti mældist hærri
Þannig mældi gervitunglið yfirborðshita upp á 48°C í Madríd, 44°C í Róm og 46°C í bæði Poitiers í Frakklandi og Zaragoza á Spáni. Í Norður-Afríku mældist enn meiri hiti á yfirborði jarðar; í Túnis náði hann 49°C.
Þar sem yfirborð eins og klettar, sandur og malbik safna í sig hita og halda honum, er hitastig á jörðu oft mun hærra en lofthitinn sem mældur er í skugga.
Sentinel-3 ber fjögur mælitæki, þar á meðal afar nákvæmt hitamælitæki sem mælir hitastig bæði á landi og hafi. Það greinir hitastreitu á landi og gögn þess eru meðal annars notuð í landbúnaði, til að fylgjast með hitahverfaáhrifum í borgum og til að vakta skógarelda.
Núverandi hitabylgja í Evrópu stafar af veðurfræðilegu mynstri þar sem þrálátur háþrýstingur myndar svokallaða hitahvelfingu. Háþrýstisvæðið situr fast yfir Evrópu á milli lágþrýstisvæða sitt hvoru megin.