Viðskiptaráð pissar í skóinn sinn: Fyrir hvern á ríkisstjórn að vera „góð“?

Sigurður Sigurðsson skrifar:
Morgunblaðið birti í vikunni greiningu Viðskiptaráðs sem gefur ríkisstjórninni falleinkunn fyrir þingveturinn. En rýnum aðeins í það á mannamáli hvað þessir herramenn kalla „vond“ og „góð“ mál.
Hvað kallar Viðskiptaráð „versta þingmálið“? Jú, að tengja bætur almannatrygginga við launavísitölu svo öryrkjar og aldraðir lepji ekki dauðann úr skel í verðbólgunni. Þeim finnst líka skelfilegt að það séu settar takmarkanir í húsaleigulögum til að verja unga fólkið okkar gegn okri á húsnæðismarkaði.
Hvað fær hrós og telst „gott mál“? Jú, að stytta bótatímabil hjá atvinnulausu fólki og afnema jafnlaunavottun kvenna!
Er hægt að pissa meira í skóinn sinn?
Þetta sýnir okkur algjöran sannleika: Það er ekki til nein hlutlaus „góð“ eða „vond“ ríkisstjórn. Þetta snýst eingöngu um hagsmuni. Spurningin er bara: Hvers hagsmuni á ríkisstjórn Íslands að verja? Á hún að verja hagsmuni fjármagnseigenda og útgerðarinnar sem hefur malað gull á auðlindunum okkar í 40 ár, eða á hún að verja hagsmuni fólksins í landinu?
Þetta blákalda hagsmunapot Viðskiptaráðs sýnir af hverju kosningarnar þann 29. ágúst eru svo hrikalega mikilvægar.
Ef við höldum áfram á sömu braut og kjósum NEI án þess að krefjast stórstígra breytinga, þá leyfum við þessum lokuðu klúbbum að stýra því hvað telst „gott og vont“ á Íslandi. Ef við veljum þá leið verðum við að mæta af fullri hörku, heimta nýja stjórnarskrá og Auðlindasjóð sem tekur valdið af þessum þrýstihópum.
Ef við kjósum JÁ, þá erum við að segja að íslenska stjórnmálakerfið sé of samofið svona hagsmunagæslu Viðskiptaráðs og útgerðarinnar, og við þurfum evruna og ytri ramma til að neyða fram jafnrétti og brjóta upp einokunina.
Sleppum Excel-skjölunum þeirra. Horfum á það hver hagnast á ákvörðununum. Ísland á að vera rekið fyrir fólkið, ekki fyrir hagsmunapot fárra útvalda!