Inga Sæland menntamálaráðherra hefur skipað Margréti Jónsdóttur Njarðvík í embætti skólameistara Fjölbrautaskólans í Breiðholti til fimm ára. Hún starfaði áður sem rektor Háskólans á Bifröst í sex ár.
Hún er með MBA-gráðu í stjórnun frá HÍ og doktorsgráðu í spænsku og bókmenntum frá Princeton.
Sjö sóttu um:
- Elvar Jónsson, leiðtogi farsældar barna
- Guðmundur Stefán Gunnarsson, kennari og íþróttafræðingur
- Harpa Jörundardóttir, framhaldsskólakennari
- Hrafnhildur Hafberg, framhaldsskólakennari, alþjóðafulltrúi og kynningarstjóri
- Margrét Jónsdóttir Njarðvík, fyrrv. rektor
- Nanna Kristjana Traustadóttir, sérfræðingur
- Víðir Stefánsson, aðstoðarskólameistari