Borgarstjóri segir skýrt að borgin sé enn í stöðu til að semja um endurgjald fyrir bensínstöðvarlóðir. Borgarráð hafi ekki rætt við olíufélögin áður en ákveðið hafi verið að semja aftur við þau.
Ráðið ætlar að skipa nefnd til að semja við lóðarhafa um uppbyggingu á bensínstöðvarlóðum og endurgjald á markaðsvirði.
Lóðirnar í eigu borgarinnar, ekki olíufélaganna
Hildur Björnsdóttir borgarstjóri segir mismikinn tíma eftir af lóðarleigusamningum olíufélaganna. Í einhverjum tilfellum séu örfá ár eftir en í öðrum áratugir. Lóðirnar séu í eigu borgarinnar.
Fyrri borgarstjórn lét lóðirnar eftir endurgjaldslaust 2021 gegn því að þar yrðu byggð íbúðarhús en síðan hefur lítið frést af uppbyggingu. Ekki var lagt mat á hversu mikil verðmæti væru mögulega undir.
Olíufélögin og félög þeim tengd hafa selt byggingarrétt mörgum af lóðunum fyrir rúma fimm milljarða króna hið minnsta.
Erfitt fyrir lóðarhafa að sitja í óvissu
Í umsögn borgarlögmanns sem var kynnt borgarráði í gær er varað við broti á reglum um ríkisaðstoð í samningum borgarinnar við olíufélögin. Áður en lengra sé haldið þurfi að fara fram athugun á þeim verðmætum sem gefin eru eftir í samningunum.
Hildur Björnsdóttir borgarstjóri segir nýjan meirihluta vilja klára þetta mál hratt og vel enda sé það allra hagur.
„Þessi umsögn borgarlögmanns hefur legið fyrir í nokkrar vikur og lá fyrir hjá fyrri meirihluta. Við sjáum enga ástæðu til að draga mál jafnvel þó að ákvarðanirnar séu erfiðar. Það var alveg ljóst að það þurfti að taka þessa ákvörðun og við erum ekkert að slóra við stóru málin. Við þurfum bara að halda áfram og leita lausna og það er líka erfitt fyrir lóðarhafana að sitja eftir í óvissu, margir búnir að klára jafnvel skipulög sem á bara eftir að samþykkja.“
Réttindi hafi ekki skapast við gerð samninga
Er hægt að breyta samningum eftir á? Er hægt að fara fram á endurgjald á markaðsvirði þegar samið var um annað upphaflega?
„Við óskuðum eftir úttekt innri endurskoðunar á sínum tíma á þessum samningum borgarinnar við olíufélögin og fengum kynningu á niðurstöðunum 15. október síðastliðinn og þar kom skýrt fram að réttindi hafi ekki stofnast þegar ekki er búið að samþykkja deiluskipulag formlega og á langflestum lóðanna hefur það ekki verið gert þannig að við erum enn þá í stöðu til að semja um endurgjald fyrir verðmætin sem við erum að afhenda.“