„Hann er ekki Messías“
Andy Burnham, sem fékk viðurnefnið „konungur norðursins“ sem borgarstjóri Manchester, virðist standa á þröskuldi þess að verða næsti leiðtogi Verkamannaflokksins og næsti forsætisráðherra Bretlands. Þetta er þriðja atlagan að formannsstólnum og að hans sögn „síðasta tækifærið“ til að breyta Verkamannaflokknum. Nú vinnur hann að því að róa fjárfesta. En hver er þessi maður sem var fagnað svo innilega af samflokksmönnum þegar hann sór embættiseið sem þingmaður?
Andy Burnham virðist standa á þröskuldi þess að verða næsti leiðtogi Verkamannaflokksins og næsti forsætisráðherra Bretlands. Nú vinnur hann að því að róa fjárfesta sem óttast að ríkisútgjöld og skuldir muni aukast undir hans stjórn.
Sem borgarstjóri Manchester hlaut hann viðurnefnið „konungur norðursins“, en gaf borgarstjórastólinn eftir með því að taka sæti á breska þinginu í aukakosningum.
Eftir að hann hafði svarið eið sem þingmaður heilsaði hann stuðningsmönnum sínum í Westminster Hall með hnefann á lofti og tók sjálfsmynd fyrir framan hóp um 200 þingmanna Verkamannaflokksins. Honum var vel tekið af samflokksmönnum sínum sem fögnuðu með honum. Þeirra á meðal var Wes Streeting, fyrrverandi ráðherra, sem var framan af talinn helsti keppinautur Burnham um forsætisráðherraembættið.

Á þinginu heyrðist einn þingmaður hrópa háðslega: „Hann er ekki Messías.“
Þriðja tilraunin
Allt var þetta …