Karl III Bretakonungur og Kamilla drottning ætla ekki að flytja í Buckinghamhöll þegar dýrum framkvæmdum lýkur á byggingunni. Buckingham er eitt helsta kennileiti Bretlands og hafa margir Íslendingar farið þangað að skoða sig um. Til stendur að auka enn aðgengi ferðamanna að höllinni og hefur það áhrif á ákvörðun konungshjónanna. Munu þau halda áfram að búa í Clarence House skammt frá en höllinn verður áfram opinberar höfuðstöðvar embættisins.
Karl og Kamilla ætla ekki að flytja í Buckinghamhöll