Einstæð móðir á leigumarkaði í höfuðborginni hefur vakið athygli á að einstaklingur hafi reynt að framleiga íbúð sem er í eigu óhagnaðardrifins leigufélags. Leigufélagið er að skoða málið.„Vek athygli á því að fólk passi sig á að leigja ekki íbúðir sem einstaklingar eru að framleiga ólöglega sérstaklega þegar fólk er að misnota óhagnaðardrifið og félagslegt húsnæði,“ segir hún í færslu í hópnum Leiga á Facebook. Auglýst var til leigu þriggja herbergja íbúð í Safamýrinni, óskað var eftir 360 þúsund krónum á mánuði í leigu fyrir íbúðina.
Einstæð móðir sá eitthvað bogið við íbúðina í Safamýrinni: „Óþolandi“