Saksóknari í máli Mariusar Borgs Høiby, sonar Mette-Marit krónprinsessu Noregs, ætlar ekki að áfrýja sýknudómum í málinu.
Hann áfrýjar þó fjögurra ára fangelsisdóminum og óskar eftir nýju mati á refsingu, verði málið tekið upp að nýju.
„Refsimörk fyrir nauðgun og ofbeldi í nánum samböndum eru í þróun og héraðsdómur hefur miðað við lægri refsimörk en saksóknari,“ er haft eftir Sturla Henriksbø, ríkissaksóknara í Noregi, í frétt NRK.
Marius Borg Høiby var dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir tvær nauðganir, ofbeldi í nánu sambandi, líkamsárás og fjölmörg brot á nálgunarbanni auk annarra brota.
Saksóknari krafðist þess að hann yrði dæmdur í sjö ára og sjö mánaða fangelsi en verjendur hans töldu hæfilega refsingu vera eitt og hálft ár.
Mikið álag fyrir brotaþola að áfrýja
Høiby hefur þegar áfrýjað dómnum fyrir nauðgun og ofbeldi í nánu sambandi. Verjendur hans, Ellen Holager Andenæs og Petar Sekulic, tilkynntu það strax sama síðdegi og dómurinn féll.
Høiby var sýknaður af tveimur öðrum nauðgunum sem hann var kærður fyrir.
Henriksbø segist ekki ætla að áfrýja þeim vegna þess að því fylgi mikið álag fyrir brotaþola og aðra sem málið varðar. Hann segir að ákvörðunin hafi verið tekin eftir samtöl við réttargæslumenn kvennanna.
„Þetta er tegund mála þar sem sönnunarmat er erfitt, sem sést á því að sýknunarhlutfall í þessum málum er hærra en í öðrum tegundum mála,“ segir saksóknarinn.
Í SMS-skilaboðum til NRK skrifaði Sekulic: „Það er skynsamlegt að saksóknari hafi ekki áfrýjað sýknudómunum“.