Landsréttur hefur staðfest sýknu íslenska ríkisins í máli einstaklings sem taldi sér hafa verið haldið í sóttkví á tímum COVID-19 með ólögmætum hætti.Forsaga málsins er sú að í nóvember árið 2021 var stefnandinn í málinu að koma heim frá Bretlandi. Hafði hann ekki forskráð sig inn í landið fyrir heimkomuna, líkt og var þá skylt að gera, framvísaði ekki vottorði, neitaði að gangast undir PCR-próf á Keflavíkurflugvelli og neitaði svo einnig að gangast undir slíkt próf fimm dögum eftir heimkomu, eins og honum þó bar að gera.
Ekki brotið gegn stjórnarskrá er einstaklingi var gert að sæta 14 daga sóttkví í faraldrinum