Öfgahægrimaður sem myrti 6 manns og slasaði um 300 á jólamarkaði í Magdeburg árið 2024 hefur verið dæmdur til lífstíðarfangelsis. Játning að hluta lá fyrir í málinu.Taleb al-Abdulmohsen, 51 árs geðlæknir, var dæmdur í lífstíðarfangelsi í Þýskalandi í dag. Hann keyrði leigðum BMW inn í jólamarkað í borginni Magdeburg þann 20. desember árið 2024. Fimm konur og níu ára drengur létust í árásinni og hundruð særðust.Taleb er upprunalega frá Sádi Arabíu, en er yfirlýstur andstæðingur Islam og stuðningsmaður hægri öfgaflokka á borð við AFD í Þýskalandi.
Hægri öfgamaður dæmdur til lífstíðarfangelsis fyrir fjöldamorðin á jólamarkaði í Magdeburg