Ivanka Trump, dóttir Bandaríkjaforseta er hér á landi ásamt Jared Kushner, eiginmanni sínum. Hér feta þau í fótspor annarra auðkýfinga, sem hafa valið að dvelja á afskekkta lúxushótelinu Deplum, innan um náttúru og sveitabæi í Fljótum á Tröllaskaga.
Heimildir fréttastofu herma að þar hafi hjónin gist. Eignastjóri fyrirtæksins veitir vitanlega engar upplýsingar um gesti - en segir vorið og sumarið hafa gengið vonum framar. Mikið sé af bókunum og vinsældir hótelsins aukist ár frá ári.
Yfir 8 milljónir króna fyrir húsið allt í eina nótt
Á Deplum kostar næturgisting í júlí í kring um átta hundruð þúsund fyrir herbergi. Miðað við bókunarvef þeirra er almennt reiknað með að fólk gisti í tvær nætur eða meira, svo það er hæpið að þriggja nátta dvöl þar kosti minna en tvær og hálfa milljón. Auðkýfingar hafa þó mikið leigt hótelið eins og það leggur sig. Þar er nóttin nær 8,5 milljónum íslenskra króna.
Þau hjónin eru langt frá því að vera fyrstu heimsþekktu og sterkefnuðu gestirnir sem dvelja á Deplum. Justin Bieber stimplaði sig rækilega inn sem Íslandsvinur þegar hann dvaldi þar fyrir rúmu ári.
Bandarískur auðkýfingur fyrirferðarmikill í fámennri sveit
Bandaríski viðskiptamaðurinn Chad Pike er eigandi fyrirtækisins Eleven Experiences sem rekur Depla og fleiri gististaði víða um heim undir sömu merkjum. Upplifunin á flestum stöðum er seld á svipaðan hátt: Afskekktur lúxus, afþreying, útivist, glæsibifreiðar, þyrlur og persónuleg, sérsniðin þjónusta í hvert fótmál.
Pike hefur rekið ferðaþjónustu í Fljótunum í um tíu ár og á þar um tíu þúsund hektara af landi. Á því er hótelið, ásamt starfsmannahúsum, upptökuveri fyrir tónlistarmenn og allskonar húsakostur til afþreyingar fyrir hótelgesti.
Eignastjóri hótelsins segir í samtali við fréttastofu að Deplar hafi byggt upp húsakost sinn jafnt og þétt á síðustu árum á þessum tíu þúsund hektörum, en engar stórar framkvæmdir séu í farvatninu í dag.
Annars hefur lítið heyrst af ferðum Trump og Kushner um Tröllaskagann, utan þess að þau hafi komið um Akureyrarflugvöll í gær og verði hérlendis í nokkra daga í einkaerindum.
Nokkuð hefur gustað um tengdason bandaríkjaforseta undanfarið, ekki síst í tengslum við áform hans um ferðamannaparadís í Albaníu. Þar hafa heimamenn mótmælt harðlega fyrirhugaðri byggingu lúxusgistingar á verndarsvæði.