Björgunarsveitir í Venesúela eru í kappi við tímann að ná til fólks sem enn er fast í rústum húsa eftir jarðskjálftana. Þúsunda er saknað og hið minnsta sex hundruð eru látnir. Við fjöllum um þetta og ræðum við jarðeðlisfræðing frá Venesúela sem búsettur hefur verið á Íslandi í áratug.
Við fjöllum líka um umferðarljósin á höfuðborgarsvæðinu og breytingar sem gera á þeim. Bjarki fréttamaður lítur við í Hrafnagili þar sem gríðarleg uppbygging hefur orðið á síðustu árum.
Við kynnum okkur einnig deilur um grásleppuskúr sem nýttur hefur verið fyrir gusur og skellum okkur í Hörpu þar sem Stefán Hilmarsson fagnar stórafmæli í kvöld með sérstökum tónleikum.