Svo virðist sem töluverð mengun komi frá fiskþurrkunarverksmiðju Samherja (áður Laugafiskur) í Þingeyjasveit. Íbúar á svæðinu segjast upplifa hljóðmengun og finna vonda lykt. Þá hafa þeir orðið varir við frárennslismengun, líkt og meðfylgjandi myndir sýna.
Tæknistjóri landvinnslu hjá Samherja segir þó að starfsemi verksmiðjunnar uppfylli öll þau skilyrði sem þeim hafi verið sett.
Í Facebook færslu sinni í vikunni deildi Haraldur R. Sverrisson myndum af Torfdalstjörn á Laugum þar sem sjá má frárennslismengun út frá verksmiðjunni. Segir hann mengað frárennsli renna frá verksmiðjunni í Torfdalstjörnina og þaðan út í Reykjadalsá.
Bætir hann við að linnulaus hvinur komi frá þurrkblásurum allan sólarhringinn og „ógeðsleg lykt sömuleiðis“.
Fiskþurrkunin hefur verið starfrækt að Laugum frá árinu 1988 en hefur verið rekin af Samherja í núverandi mynd síðan frá því um aldamótin.
Í samtali við mbl.is segir Haraldur að lengi hafi ástandið verið slæmt en að ráðist hafi verið í aðgerðir í janúar á þessu ári sem hafi átt að gera eitthvað í menguninni. Ástandið hafi þó ekkert skánað.
„Það er linnulaus hvinur frá blásurum allan sólarhringinn og lyktin er þannig að það er ekki hægt að hafa glugga opna hérna í hverfinu,“ segir Haraldur og bætir við að fólk geti oft og tíðum ekki hengt upp þvott sökum lyktarinnar. Síðan sé, eins og má á myndum sjá, ekki gott ástand í Torfdalstjörninni.
Kvartað síðan árið 2014
Haraldur segist sjálfur hafa kvartað yfir mengun starfseminnar síðan árið 2014 en í gegnum tíðina hafi bæði verið ábótavant um svör og aðgerðir. Segir hann ekki nægilegt eftirlit vera með starfseminni.
Haraldur bætir við að síðasta starfsleyfi verksmiðjunnar hafi verið kært og í ljós hafi þá komið fram að Heilbrigðiseftirlit Norðurlands eystra hafi ekki haft heimild til að gefa leyfið út sökum formgalla. Segir hann starfsemina þó hafa haldið áfram á milli þess sem að það kom í ljós og að starfsleyfið var að lokum afgreitt.
Uppfylla öll skilyrði
Í samtali við mbl.is segir Atli Dagsson, tæknistjóri landvinnslu hjá Samherja, að starfsemi verksmiðjunnar uppfylli öll þau skilyrði sem þeim séu sett. Hann staðfestir að fjárfest hafi verið í fjölda tækja og búnaðar til þess að gera ástandið betra.
Hann segir Torfdalstjörnina taka á móti frárennsli frá fyrirtækinu og að frárennsli frá sveitarfélaginu renni einnig í þessa tjörn.
Hann viðurkennir að í dag yrði slíkri starfsemi líklega ekki komið fyrir svo nálægt íbúabyggð en verksmiðjan hafi verið sett á stofn árið 1988.
Hann ítrekar að starfsemin uppfylli þau skilyrði sem henni séu sett.
„Við þurfum að láta mæla frárennsli og hljóð, það er það sem hægt er að mæla og það er í lagi hjá okkur.“ Erfitt geti þó reynst að mæla lykt, „því miður“.
