Undirbúningi í tengslum við almyrkvann 12. ágúst miðar almennt vel og hann er á mörgum stöðum á lokametrunum. Þetta kemur fram í minnisblaði stýrihóps Stjórnarráðsins um samhæfingu undirbúnings vegna almyrkvans en sex ráðuneyti senda frá sér sameiginlega tilkynningu um gang mála.
Lagði hópurinn minnisblað sitt fyrir ríkisstjórnina á fundi hennar í síðustu viku en þar kemur ýmislegt fleira fram en framangreint.
Tilmæli stjórnvalda eru að íbúar á vestanverðu landinu og suðvesturhorninu reyni að njóta þessa einstæða og sögulega atburðar heima eða í sínu nærumhverfi.
Vestfirðir verða helsta álagssvæðið og er nú verið að stækka bílastæði við Látrabjarg, bæta þar salernisaðstöðu, afmarka bjargbrún, fjölga landvörðum og undirbúa umferðarstýringu og mögulegar lokanir.
Skýrar áætlanir fyrir Vesturland
Að líkindum mun vegurinn um Látrabjarg bera þá umferð sem reiknað er með um hann, mest fólksbíla og smærri langferðabifreiðar. Verður einstefna um veginn í aðdraganda myrkvans og einnig til baka að myrkva afstöðnum og verður akstur stærri ökutækja en með sætafjöldanum 19+1 bannaður á Örlygshafnarvegi og Rauðasandsvegi 12. ágúst.
Á Vesturlandi liggja skýrar aðgerðaáætlanir fyrir vegna umferðar en reiknað er með að mannfjöldi verði þar helsta áskorunin þar sem búist er við því að þeir sem ákvörðun taka með skömmum fyrirvara um myrkvaför taki stefnuna á Vesturland fremur en firðina.
Á Reykjanesi eru einkaflugvélar, drónaflug, hugsanleg samþjöppun fólks á vinsælum skoðunarsvæðum og álag á Reykjanesbraut helstu áskoranir en samkvæmt minnisblaðinu hafa lögregluembætti fengið heimild til að standa straum af nauðsynlegum útgjöldum vegna viðbúnaðar. Þetta hafi dregið verulega úr óvissu um aðkomu björgunarsveita og fjármögnun verkefna.
Landhelgisgæslan klár í slaginn
Almannvarnadeild ríkislögreglustjóra segir að búast megi við töluverðum umferðarþunga í þrjá daga fyrir atburðinn og tvo daga á eftir og verður Landhelgisgæslan með tvær þyrlur og áhafnir á báðar til reiðu í Reykjavík, þriðja áhöfn verður tæk til afleysinga komi til þess. Þá mun varðskipið Freyja lóna úti fyrir Vesturlandi og nýir aðgerðabátar Gæslunnar verða úti fyrir Snæfellsnesi og Suðurnesjum
Samgöngustofa og Landhelgisgæslan telja mikilvægt að fólk kynni sér þær kröfur sem gerðar eru til farþegaflutninga á sjó og minna á að ekki er heimilt að bjóða upp á slíkt án tilskilinna leyfa.
Minnt er á upplýsingagáttina um almyrkvann, island.is/almyrkvi. Hún verður uppfærð reglulega með nýjustu upplýsingum.