Bandaríkjaher gerði loftárásir á geymslusvæði fyrir flugskeyti og dróna auk strandratsjárstöðva í Íran. Stjórnvöld í Washington sökuðu Íran um árás á flutningaskip í Hormússundi áður en árásirnar fóru fram.
Yfirstjórn Bandaríkjahers segir á X að árásirnar séu svar við „tilefnislausri árás íranskra hersveita á alþjóðlegar siglingar“ sem hafi falið í sér skýrt brot á vopnahléi ríkjanna. Samkvæmt yfirstjórninni var aðgerðin framkvæmd sem svar við árás Írana á flutningaskip sem var á siglingu um Hormússund daginn áður.
Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði árás Írana vera „heimskulegt brot“ á vopnahléssamkomulagi.
Íranska ríkissjónvarpið segir að sprenging hafi heyrst við Taherouyeh-bryggjuna í suðurhluta hafnarborgarinnar Sirik. Hernaðarheimildir á svæðinu segja að sprengingin hafi stafað af loftárás.
Siglingamálastofnun Sameinuðu þjóðanna stóð fyrr í dag fyrir aðgerð sem gerði 115 skipum og um 2.500 sjómönnum kleift að komast frá Hormússundi eftir að hafa setið þar fastir vegna átakanna. Hormússund er ein mikilvægasta siglingaleið heims fyrir olíu- og gasflutninga, en um fimmtungur heimsviðskipta með slík orkuefni fer þar um.