Þjóðverji fékk fyrsta vinning og fær rúma 12,5 milljarða króna í vasann. Fimm miðaeigendur deildu svo öðrum vinningi og fær hver um sig 69 milljónir. Voru þrír þeirra í Þýskalandi, einn í Svíþjóð og einn í Eistlandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslenskri getspá.
Einn á móti þremur milljónum
Tölfræðilegar vinningslíkur á því að fá fimm réttar aðaltölur í EuroJackpot og þar með þriðja vinning í útdrætti eru einn á móti 3.107.515, samkvæmt reglugerð um talnagetraunir Íslenskrar getspár. Líkurnar á því að fá fyrsta vinning eru einn á móti 139.838.160.
Fram kemur í tilkynningu Íslenskrar getspár að einn Jókerspilari hafi fengið fyrsta vinning í útdrætti kvöldsins og fái 2,5 milljónir króna í sinn hlut. Miðinn var keyptur á N1 Ártúnshöfða. Einn var með annan vinning og fær 125 þúsund krónur. Sá miði var keyptur á lotto.is.