Örlítill meirihluti þeirra sem taka afstöðu í nýjum þjóðarpúlsi Gallup ætlar að segja já í þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið í lok ágúst, eða 52 prósent. 48 prósent ætla að segja nei.
Þetta kom fram í kvöldfréttum RÚV.
Þar segir jafnframt að þeir sem ætli að segja já séu vissari í sinni sök. 39 prósent ætla örugglega að segja já og 13 prósent ætla líklega að segja já.
Mestur er stuðningur við áframhaldandi viðræður meðal fólks undir þrítugu. 63 prósent þeirra segjast ætla að segja já en 37 prósent nei. Næstmestur er stuðningurinn í aldurshópnum 40-49 ára, eða 61 prósent.
Minnstur er stuðningurinn meðal fólks á fertugsaldri, eða 42 prósent.