Bandarísk stjórnvöld hafa veitt gervigreindarfyrirtækinu Anthropic heimild til þess að veita smáum hópi netöryggisfyrirtækja í Bandaríkjunum aðgang að gervigreindarlíkani fyrirtækisins, Mythos 5. Þetta hefur AFP eftir talsmanni fyrirtækisins.
Samband Anthropic og ríkisstjórnar Donalds Trumps hefur verið stormasamt undanfarna mánuði.
Lokað var fyrir aðgang að gervigreindarlíkaninu Mythos 5 fyrr í mánuðinum. Bandarísk stjórnvöld sögðu það gert því gervigreindarlíkanið gæti ógnað þjóðaröryggi.
Fyrr á þessu ári meinaði fyrirtækið Bandaríkjaher að nota gervigreindarlíkön sín til að hafa eftirlit með bandarískum ríkisborgurum eða í hernaði, til dæmis við að velja skotmörk.
Talsmaður Anthropic segir við AFP að fyrirtækið ætli að halda viðræðum við stjórnvöld áfram. Markmiðið sé að veita almenningi aðgang að gervigreindarlíkönum fyrirtækisins að nýju.