Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í gærkvöld eða nótt mann sem ógnaði börnum með hnífi í tilraun til að ræna hlaupahjóli. Í morgunpósti lögreglu segir að hann hafi verið í mjög annarlegu ástandi.
Frá klukkan 17 í gær og til klukkan 5 í morgun rötuðu 69 verkefni á borð lögreglu. 8 gistu fangageymslur í morgunsárið.
Lögreglunni barst tilkynning um mann sem stundaði sjálfsróun í runna fyrir framan ungmenni.
Henni barst einnig tilkynning um par sem stundaði samfarir í sundlaug fyrir framan sundlaugargesti, þar á meðal börn.
Í dagbók lögreglu segir að hún hafi farið á vettvang í kjölfar beggja tilkynninga til að rannsaka málið. Ekki fylgir sögunni hverjar málalyktir urðu.
Maður sem gerði tilraun til að stela hjóli við heimahús var handtekinn. Hann reyndist vera með vopn á sér. Lögreglan greinir ekki frá því hvers lags vopn var um að ræða en maðurinn var vistaður í fangaklefa vegna rannsóknar málsins.