Upptaka sem nýlega var gerð opinber sýnir handtöku Vickrums Digwa, mannsins sem í byrjun júní var dæmdur í að lágmarki 21 árs fangelsi fyrir morðið á 18 ára háskólanemanum Henry Nowak.
Á upptökunni sést að Digwa var ekki handjárnaður þegar hann var handtekinn á vettvangi, þrátt fyrir að grunur léki á að hann hefði stungið Nowak ítrekað með hnífi. Síðar staðfesti lögreglan í Hampshire við BBC að Digwa hefði ekki verið handjárnaður allan þann tíma sem hann sat í haldi fyrstu fjóra dagana áður en hann var ákærður.
Sagðist hafa orðið fyrir kynþáttaníði
Í um níu mínútna upptöku heldur Digwa því fram að hann hafi aðeins varið sig. Hann segir Henry Nowak hafa verið ölvaðan, rekist á sig, verið með kynþáttaníð og rifið túrban hans af höfði.
Lögreglan handtók fórnarlamb stunguárásar eftir ásakanir um rasisma – Lést í handjárnum
Digwa segir lögreglu meðal annars að hann hafi orðið fyrir árás vegna kynþáttar síns og að fjölskylda hans hafi áður orðið fyrir kynþáttafordómum. Þegar honum er tilkynnt að hann sé handtekinn vegna gruns um tilraun til manndráps spyr hann: „Hvað áttu við með tilraun til manndráps? Af hverju er ég handtekinn?“
Lögreglumaður svarar þá:
„Þú getur sagt þína hlið sögunnar. Við vitum ekki hvað gerðist enn.“
Þegar Digwa ítrekar að hann hafi orðið fyrir kynþáttárás svarar sami lögreglumaður:
„Ég veit það, félagi. Ég er ekki að segja að þú hafir gert neitt.“
Fjölskylda Henry gagnrýnir lögregluna
Fjölskylda Henry Nowak segir að óbærilegt sé að horfa á muninn á meðferð lögreglu á syni þeirra og Digwa.
Málið hefur áður sætt gagnrýni eftir að birt voru samskipti lögreglu á vettvangi sem sýndu að um átta mínútur liðu þar til lögreglumenn áttuðu sig á stungusári Henrys, þrátt fyrir að hann hefði ítrekað sagt þeim að hann hefði verið stunginn og ætti erfitt með að anda.
Harðorð gagnrýni stjórnarandstöðunnar
Chris Philp, skuggainnanríkisráðherra breska Íhaldsflokksins, gagnrýndi aðferðir lögreglu harðlega eftir birtingu myndbandsins.
Hann sagði að augljós munur á því hvernig komið hefði verið fram við fórnarlambið og morðingjann væri skammarlegur og gagnrýndi jafnframt það sem hann telur vera hugmyndafræðileg áhrif á störf lögreglunnar.
Newly released police bodycam footage from just after the murder of Henry Nowak.
Digwa: “But I’ve been racially attacked.”
The officer: “I know, mate, I know,” and adds: “I’m not saying you’ve done anything, mate.”
Digwa moans about being tired and police lights hurting his… pic.twitter.com/DS4LqRDpy1
— Tommy Robinson 🇬🇧 (@TRobinsonNewEra) June 26, 2026