Þjóðverjar eiga í erfiðleikum með að skrá nógu marga nýliða í her landsins til að mæta markmiðum sínum um herstyrk.
„Ef við náum ekki markmiðum okkar með nýskráningum sjálfboðaliða í herinn þá þurfum við að endurvekja herskyldu. Þetta þarf að ákveða fyrir 31. júlí á næsta ári,“ segir Thomas Röwekamp, formaður varnarmálanefndar þýska sambandsþingsins, í samtali við AFP.
Röwekamp segir Evrópu allri stafa ógn af Rússum. Ríki álfunnar þurfi þar að auki að efla varnir sínar vegna þess hve óútreiknanleg stjórnvöld í Bandaríkjunum séu. Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur nú þegar greint frá því að Bandaríkin ætli að fækka hermönnum sínum í Evrópu.
Stjórnvöld í Berlín hafa það að markmiði að fjölga í herliði sínu. Til stendur að fjöldi hermanna verði orðinn 260 þúsund fyrir árið 2035. Þeir eru 185 þúsund um þessar mundir.
Röwekamp telur ólíklegt að nógu margir eigi eftir að skrá sig sjálfviljugir í herinn til þess að þetta markmið náist.
Verði herskyldu komið aftur á í landinu þýðir það ekki að allir karlmenn verði skráðir í herinn við 18 ára aldur. Árlega eru um 350 þúsund menn sem ná þeim áfanga. Þess í stað myndi herinn ráða til sín eins marga nýja hermenn og þurfa þykir til þess að hann nái árlegum markmiðum sínum.