Bekkur við göngustíg við Sæbraut í Reykjavík nálægt Höfða er orðinn að minningarbekk um kínverskan söngvara og leikara sem lést í fyrra.
Yu Menglong, sem einnig var kallaður Alan Yu, lést í september eftir fall úr fjölbýlishúsi í Peking. Lögreglan þar í landi tilkynnti að andlát Yu hefði verið slys eða sjálfsvíg og að Yu hefði verið undir áhrifum. Hún útilokaði að nokkuð saknæmt hefði gerst.
Útskýringar og umfjöllun um dauðsfallið vöktu hins vegar tortryggni netverja, samkvæmt miðlinum Foreign Policy. Í framhaldinu spruttu upp ýmsar samsæriskenningar um að brögð hefðu verið í tafli og að yfirvöld hefðu reynt að hylma yfir það.
Kínverskir samfélagsmiðlar eru ritskoðaðir og reynt var að eyða allri umræðu um Yu sem var ekki samhljóma opinberum útskýringum á dauðsfallinu. Til dæmis var aðgöngum sem settu spurningarmerki við opinberar útskýringar eða kölluðu eftir frekari rannsókn eytt.
Aðdáendur Yu hafa þrátt fyrir þetta verið ötulir við að vekja athygli á andláti hans og hafa komið upp minnismerkjum um hann á almenningsbekkjum víða um heim, þar á meðal í Reykjavík.
Af færslum á samfélagsmiðlum að dæma var bekkurinn merktur Yu fyrr á þessu ári.
Gangandi vegfarendur hafa margir tekið eftir því að blóm og bangsar hafi verið skilin eftir á bekknum, en hann var tómur þegar ljósmyndara fréttastofu bar að garði.
Sóttu um minningarbekki
Samkvæmt upplýsingum frá Reykjavíkurborg var sótt um að setja minningarskjöld um Yu á bekkinn og er fyrirkomulagið því með leyfi borgarinnar.
Umhverfis- og skipulagssvið samþykkti árið 2021 verkferli fyrir umsóknir um minningarbekki í borgarlandinu utan miðbæjarins. Slíkar umsóknir eru teknar fyrir hjá borginni og greiða þarf fyrir bekkina.
Samkvæmt svörum borgarinnar við fyrirspurn fréttastofu var kostnaðurinn við að gera þennan tiltekna minningarbekk sennilega um 300 þúsund krónur vegna þess að bekkur var á staðnum fyrir. Þurfi að setja nýjan bekk upp er kostnaðurinn talsvert meiri.