Í fréttatímanum verður rætt við verkefnastjóra geðræktar hjá embætti landlæknis en í nýjum talnabrunni embættisins er farið yfir hvernig líðan landsmanna hefur þróast síðastliðinn áratug.
Ástandið í Venesúela versnar með hverri klukkustund eftir jarðskjálftana fyrr í vikunni. 920 eru staðfestir látnir og tugþúsunda er enn saknað.
Eftirspurn eftir námi á Akureyri er meiri en kerfið ræður við og segir bæjarstjórinn að ríkið þurfi að grípa til aðgerða og styðja við menntastofnanir bæjarins. Þá heyrum við í mótsstjóra Orkumótsins í Vestmannaeyjum sem segir foreldra hafa tekið til sín umræðu síðastu ára um slæma hegðun á hliðarlínunni.
Í íþróttunum förum við yfir allt það helst á heimsmeistaramótinu í knattspyrnu en riðlakeppni mótsins lýkur í dag.
Allt þetta og meira til á slaginu tólf.