Björgunarsveitarfólk í Venesúela er enn að finna fólk á lífi í rústum húsa eftir jarðskjálftana í Venesúela. Rúmlega tveir og hálfur sólarhringur eru liðnir frá hamförunum. Ættingjar þeirra þúsunda sem enn er saknað eru afar ósáttir við það hversu björgunarstörf ganga hægt.
Aðstæður til leitar og björgunar eftir jarðskjálftana við norðurströnd Venesúela eru afar erfiðar. Fjöldi eftirskjálfta gerir leitarmönnum erfitt fyrir og þar sem skemmdirnar voru mestar, í héraðinu La Guaira, hefur ekki verið hægt að koma mörgum þungavinnuvélum til að komast að þeim sem eru fastir í rústunum.
Líklegt að þúsundir séu undir rústunum
Upptök skjálftanna voru skammt vestur af héraðinu en þeir voru tveir og urðu með innan við mínútu millibili. Annar þeirra var 7,2 en hinn margfalt öflugri, 7,5 og varð til þess að fjöldi hárra íbúðablokka hrundi til grunna. 920 hafa fundist látin en líklegt að þúsundir séu undir rústunum. Björgunarsveitir heyra enn í fólki þar undir en eiga erfitt með að komast til þeirra.
Delcy Rodriguez, starfandi forseti Venesúela, fór um verst leiknu svæðin í gær og sagði allt kapp lagt á að koma fólkinu undan rústunum, því eftir fjóra sólarhringa væri ólíklegt að fleiri finndust á lífi. En það þarf að annast þá sem finnast, og sömuleiðis þá sem misstu heimili sín í skjálftunum. Heilbrigðiskerfið hefur verið vanfjármagnað um árabil og strax farið að bera á skorti á ýmsum nauðsynjum á sjúkrahús.
Ósáttir við hversu björgunarstörf ganga hægt
Minnst tveir spítalar skemmdust mikið í skjálftunum, einn í Caracas og annar í La Guaira, en talið er að nokkur hundruð byggingar hafi hrunið til grunna. Ættingjar þeirra sem er saknað bíða milli vonar og ótta eftir fregnum af sínum nánustu en eru mjög ósáttir við það hversu björgunarstörf ganga hægt.
Erlendar björgunarsveitir eru komnar til Venesúela en hægar gengur að koma þangað birgðum því skemmdir urðu á alþjóðaflugvellinum á Caracas og þak flugstöðvarbyggingarinnar hrundi að hluta. Það hefur því þurft að nýta aðra flugvelli og koma allri aðstoð landleiðina til íbúa höfuðborgarinnar.