„Við óskum Laufeyju Lín til hamingju með að hafa nýlega slegið í gegn í Kína. Þar sem hún er hálfkínversk gætum við ekki verið stoltari af velgengni hennar. Við hlökkum til frekari samskipta tónlistar og menningar milli Kína og Íslands,” segir í færslu á Facebook-síðu sendiráðsins.
Þar kemur fram að Laufey hafi spilað í fjórum kínverskum borgum, Peking, Sjanghæ, Guangzhou og Chengdu, og að uppselt hafi verið á alla tónleikana.
„Þetta voru stærstu tónleikar hennar í Kína til þessa,“ segir í færslunni og að áhorfendur hafi verið heillaðir.
„Einn aðdáandi skrifaði eftir sýninguna: „Ég hef farið á tónleika í yfir tuttugu ár. Ég man ekki hvenær ég sá síðast jafn einlægan flytjanda á sviði og þar sem hvert einasta lag var svona gott.“
Á leið til Ástralíu
Á heimasíðu Laufeyjar kemur fram að Laufey haldi næst til Ástralíu, þar sem hún heldur átta tónleika í júlí, og svo til Nýja-Sjálands í ágúst og þaðan til Brasilíu og Mexíkó. Ekki eru fleiri tónleikar skipulagðir á árinu samkvæmt heimasíðunni. Laufey hélt tónleika á Íslandi í mars í Kórnum í Kópavogi. Uppselt var á tvenna tónleika.