Það vakti athygli þegar Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, birtist á opinberri mynd í ljósum frakka og köflóttum trefli við hlið Jose Manuel Albares Bueno, utanríkisráðherra Spánar.
Á samfélagsmiðlum fóru sumir fljótlega að benda á að klæðnaðurinn minnti óneitanlega á eina þekktustu persónu Spaugstofunnar, „Kristján heiti ég Ólafsson“, sem Sigurður Sigurjónsson gerði ódauðlega á sínum tíma.

Persónan einkenndist meðal annars af ljósum frakka og köflóttum trefli, og varð einn af eftirminnilegustu karakterum í sögu Spaugstofunnar.
Þótt Þorgerður hafi vitanlega ekki verið að vísa til persónunnar með klæðnaði sínum, þá verður að viðurkennast að líkindin eru sláandi. Stundum þarf ekki nema frakka og köflóttan trefil til að vekja upp gamlar sjónvarpsminningar hjá Íslendingum.
Hvað finnst lesendum? Er þetta langsótt eða sjá fleiri sömu líkindi?