Hvalveiðar verða bannaðar gangi markmið atvinnuvegráðherra eftir um lagasetningu næsta vetur. Skip samtaka Paul Watson er á leið til landsins til að reyna að koma í veg fyrir hvalveiðar.
Bandero, skip samtakanna Captain Paul Watson Foundation, kennd við stofnandann og hvalveiðiandstæðinginn Paul Watson, er á leið til landsins í leiðangri sem kallaður er Aðgerð 86. Leiðangurinn er kenndur við árið 1986 þegar samtökin Sea Sheapherd sökktu bátum Hvals hf. Hval 6 og Hval 7 í Reykjavíkurhöfn. Paul Watson sem þá var í samtökunum sagðist bera ábyrgð á verknaðinum.
„Við ætlum að gera allt sem við getum til þess að koma í veg fyrir að þau drepi ekki neinn hval á meðan við erum þar“, segir Paul Watson um borð í Bandero í myndbandi á Facebook síðu samtakanna sem birt var í gær:
Gæslan á vaktinni
Landhelgisgæslan vaktar skipið. Það var ekki komið inn í 200 mílna efnahagslögsöguna í gær. Landhelgisgæslan grípur ekki inn í nema að hún telji að lífi og heilsu áhafna sé stefnt í hættu.
Hafrannsóknastofnun og Norður-Atlantshafs sjávarspendýraráðið, NAMMCO, ráðleggja að ekki verði veiddar fleiri en 150 langreyðar í ár og 116 hrefnur. Veiðar voru heimilaðar Hvali hf. og hrefnuveiðibátnum Halldóri Sigurðssyni ÍS með reglugerð í desember 2024 og gildir leyfið í fimm ár og endurnýjast sjálfkrafa á fimm ára fresti.
Kominn tími til breytinga
Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra vill banna hvalveiðar og undirbýr löggjöf þess efnis. Frumvarp verður lagt fram á næsta þingi:
„Já, það er markmiðið eins og ég hef áður sagt. Núgildandi lög um hvalveiðar eru meðal elstu laga, frá 1948 eða 9, og hlutirnir hafa sannarlega breyst að mjög, mjög mörgu leyti. Þannig að það er kominn tími til að fara ofan í saumana á þessu. Við búum við þetta leyfi sem að er núna í gangi, var gefið út af fyrrverandi ráðherra, í árslok 2024. Svokallað rúllandi fimm ára leyfi. Það þarf að gera það með vandaðri lagasetningu og að því er unnið.“