Mikil jarðvegsfylla hefur fallið úr Reynisfjalli í Reynisfjöru, austan við Hálsanefshelli. Þangað kemst enginn eins og er vegna landbrots.
Hrunið sést illa úr fjörunni, vegfarendur höfðu tekið eftir stórum hnullungum í sjónum sem líklega höfðu fallið úr fjallinu. Þórir Kjartansson býr í Vík og hefur fylgst með fjörunni í tugi ára – hann skoðaði hrunið með dróna í gærkvöldi.
„Og þá blasti þetta við. Það hefur hrunið þarna gríðarlega mikil fylla úr bjarginu fast austan við hálsanefið. Það kannast flestir við hellinn sem er þarna í stuðlaberginu, þetta er fast austan við það,“ segir Þórir.
Hrunið má sjá í þessu myndskeiði sem Þórir tók.
„Þetta hefur komið þarna að minnsta kosti efst úr 100 metra hæð og þetta eru mjög margir rúmmetrar, ég treysti mér ekki til að giska á hvað þeir eru margir. En þetta er stórt hrun,“ segir Þórir sem þekkir vel til.
„Þarna kom hrun 2005 á sama stað, svo aftur 2019, en það var austar. Þar er nú alltaf minna um mannaferðir, en núna er ekki fært þarna fyrir stuðlabergsnefið þannig að það var enginn þarna á ferli þegar þetta hrun kom,“ bætir hann við.
Ef það hefði verið fært þá hefði verið talsverð hætta af þessu?
„Alveg gríðarlega mikil, því þarna er alltaf fullt af fólki. Allt í kringum Stuðlabergshellinn. Það er alveg morandi af fólki, alla daga.
Er eitthvað meira laust þarna í bjarginu?
„Það er náttúrulega alltaf eitthvað laust í þessum hömrum. Þarna eru alltaf að hrynja niður einhverjir smásteinar. Sérstaklega á vorin þegar frost er að fara úr. En ég er nú ekki viss um að það komi svona stórt hrun aftur á sama stað.“